Valentínusardagurinn í dag, þau amerísku hallærisheit! Er ekki farið að þykja bara púkó að halda upp á þennan dag? Eru það ekki bara gelgjur og kaupmenn sem gera það? Kannski er það bara þannig í kringum mig, ég veit það ekki. Þá er nú skemmtilegra að smella kossi á karlinn á bóndadaginn líkt og aðra daga!
Á þessum degi, 14. febrúar, á nú samt hann frændi minn afmæli og er hann 9 ára í dag. Af því tilefni var heljarinnar veisla á laugardaginn í sveitinni. Ég fór þó uppeftir á föstudaginn í þorraveislu og idolkvöld, eins konar þorraidol. Svo var afmælið á laugardag en mér tókst ekki að drusla mér aftur í bæinn fyrr en í gær sem þýddi það að ég lærði mest lítið um helgina... enda var þetta hin besta helgi. Á laugardagskvöldið spiluðum við Popppunktsspilið sem var ljómandi gaman. Það fer þó alveg svakalega í taugarnar á mér hvað spilið er illa (eða bara ekkert) prófarkarlesið og eru lúðavillur eins og spreittu þig á popphjólinu sjálfu auk þess sem leiðbeiningarnar eru í tómu rugli. Greinilega verið að hraða útgáfunni fyrir jólin... fussogsvei!
14.2.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli