3.3.05
Prahag
Það er nú meira vesenið með þennan blessaða vinning. Hann hljóðaði upp á flug fyrir einn til Prag frá mánudegi til fimmtudags í mars eða apríl án flugvallarskatta... allt í lagi með það. Við fórum í gær til að bóka hjá Heimsferðum en ætluðum að athuga hvort það væri möguleiki að vera kannski í viku og borga þá eitthvað meira þar sem það er flogið út seinnipart mánudags og því yrðu þetta bara tveir heilir dagar. Það var þá ekkert hægt að eiga við vinninginn, annaðhvort færum við eftir honum eða ekki! Við hættum við að bóka í bili... ætlum aðeins að melta þetta enda er nóg laust í þessar ferðir. Hver fer í miðri viku í mars eða apríl fyrir 2 daga? Sjálfsagt þeir sem vinna ferð fyrir einn.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli