
Vá hvað er erfitt að hugsa í svona hita. Það eina sem kemst að er úff, hvað mér er eitthvað heitt... Er að rembast við að gera gáfulegar reglur um tölustafi eins og: Ef á eftir tölustaf kemur ára/árs/mánaða/vetra þá er talan í eignarfalli karlkyni. Hljómar alveg ágætlega þar til fólk fer að skrifa 4ra og 2ja og svoleiðis vitleysu... Samt svo fáar tölur þannig. Ég ætla nú ekki að hanga lengi í dag, það er bara allt of gott veður! Svo eru eitthvað grunsamlega fáir mættir hérna, kannski er frí og ég vissi ekki af því ;o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli