Jájá, alltaf sniðugt að geta sent sms beint á bloggið... ég er bara pínu fegin að eiga ekki myndavélarsíma! Ég vil líka taka það fram að síðustu tvö skilaboðin voru ekki skrifuð af mér heldur stal einhver ónefnd símanum mínum til að skrifa (blikk blikk...) Annars var mjög gaman, matur hér heima þar sem við buðum sænsk/íslensku pari í mat og eftir það var ég svo kurteis að stinga af til að fara í partý hjá Önnu Katrínu. Þar kom bæjarpúkinn upp í mér og fór ég því á Sirkus. Fyrri færslur segja allt um gleðina þar!
Í dag var nú öllu heilsusamlegri afþreying í gangi þar sem við fórum í sveitina með Snorra litla (4 ára) bróðursyni Jóa og foreldrum hans og ömmu.
Í dag var nú öllu heilsusamlegri afþreying í gangi þar sem við fórum í sveitina með Snorra litla (4 ára) bróðursyni Jóa og foreldrum hans og ömmu.
Þetta er hann Snorri
Það þótti þeim litla ekki leiðinlegt - einn tuddi skírður (Skorri), farið á hestbak og litlir fiskar veiddir.
Hetjan á hestbaki
Engin ummæli:
Skrifa ummæli