16.8.04

Helgin

Jæja, það fer nú bara hrollur um mann í þessum 14 stiga hita úti... kröfurnar eru orðnar svo svakalegar. Þetta er kannski ágætt, það er þá kominn vinnufriður fyrir veðri og að baki alveg frábær löng helgi.

Eins og sést á færslunni að neðan stakk ég af úr bænum á fimmtudag, ég hreinlega gat ekki hugsað mér að hanga í borginni vitandi af iðandi lífi í sveitinni og Jóa í veiðitúr. Maður verður stundum að hugsa um andlega vellíðan líka. Fram á laugardag átti ég yndislegar stundir í sveitinni þar sem var setið á nýlegum palli í Dísukoti, legið á dýnu í sólbaði og farið í lautartúr og berjamó inn með Fossá. Og að sjálfsögðu snæddur ljúffengur matur úr potti og af grilli. Á laugardag fór ég síðan austur á bóginn þar sem við Anna Katrín, Svala og Kata dvöldum yfir nótt að Loftsölum við Dyrhólaey, stórkostlegu húsi sem frænka Önnu var svo elskuleg að lána okkur. Þar tók við meiri sól og blíða, sólbað, öl, vín og góður matur að hætti snilldarkokksins Önnu Katrínar. Útsýnið var til jökla, Reynisdranga, Dyrhólaeyjar og sjávar og alveg einstaklega gott fyrir líkama og sál að fá að koma á þennan stað. Því miður þá varð stafræna vélin batteríslaus og því ekki hægt að birta myndir hér af húsinu og umhverfi þess. Vonandi náði Svala nokkrum myndum... Takk fyrir mig Anna Katrín!

Engin ummæli: