29.7.04

Það hlaut að vera...

Það var verið að benda mér á frétt þar sem segir að hætt hafi verið við seinni tónleika Pink og 50 Cent verði færðir í Laugardalshöllina í staðinn fyrir Egilshöll. Ég get nú ekki sagt að það komi mér á óvart. Þetta tónleikaár er búið að vera með ólíkindum og ljóst að ekki getur orðið endalaust uppselt á þetta alltsaman. 50 Cent hefur ekki jafnbreiðan aðdáendahóp og t.d. Metallica sem er búin að vera starfandi í yfir 20 ár. Þótt bæði 50 Cent og Pink séu risastór úti í heimi og kannski hér líka þá er þetta bara svo lítið land að ekki er hægt að ætlast til þess að 10.000 manns sjái hvora tónleika á sama tíma eftir allt sem er búið að vera! Sjálf er ég svo að fara á Pink, pabbi bauð mér og Þórdísi frænku sem er 11 ára og er að fara á sína fyrstu rokktónleika. Ég er rosalega stolt að vera sú sem fer með henni!

Bleika pían

Engin ummæli: