Ég hef mjög svo gaman af hvers kyns glæpasögum, jafnt í formi bóka, þátta og kvikmynda. Meðal þess sem ég get setið límd yfir í sjónvarpi eru seríurnar Law and Order á Skjá 1 (einn/einum?). Í raun eru í gangi þrjár seríur,
Law and Order, Law and Order:
Special Victims Unit og Law and Order:
Criminal Intent.
Í gærkvöldi horfði ég á þátt úr
síðastnefndu seríunni sem mér finnst síst þessara þriggja. Þar fer löggan Goran með aðalhlutverk og hann er svo ótrúlega snjall að það hálfa væri alveg nóg. Raunar er hann svo snjall að hann veit allt manna best, þekkir hverja þá lykt sem hann finnur og sér á fólki hvort það segir satt eða ekki - það væri algjör óþarfi fyrir hann að hafa nokkurn aðstoðarmann á staðnum. Aðstoðarmenn Gorans eru konur, löggan Eames er hans aðalaðstoðarmaður en núna er hún víst ófrísk þannig að það er komin ný kona í afleysingar. Ef Eames fór í taugarnar á mér þá er þessi enn meira óþolandi. Eames segir svona augljósu hlutina eins og: "Ó, það er sko fótspor á gólfinu" en þá segir Goran: "Já, þetta eru greinilega sjaldgæfir gönguskór nr. 43 sem fást aðeins í búðinni hinum megin við götuna..." Nýja stúlkan er svipuð nema er látin vera enn heimskari en Eames enda virðist Goran vera nett pirraður á henni barasta. Og svo enda allir þættirnir eins - Goran bugar glæpamanninn með orðum þannig að hann getur ekki annað en játað glæpinn...
Elsta serían er
Law and Order og er þetta 15. þáttaröð hennar í sjónvarpi. Þess má geta að stundum er verið að sýna eldgamla þætti úr seríunni á
Hallmark. Þar ræður ríkjum Briscoe lögreglumaður en hann virðist hafa verið í þáttunum ansi lengi, a.m.k. er hann á Hallmark þar sem verið er að sýna 5. þáttaröð. Nýir aðstoðarmenn koma þó reglulega í þættina og má m.a. nefna sjálfan Mr. Big úr Sex and the City og nú nýlega Benjamin Bratt. Lögmaðurinn Jack McCoy gegnir líka stóru hlutverki í þáttunum og eins og Briscoe virðist hann skipta reglulega um aðstoðarmenn sem iðulega eru kvenkyns.
Það sem mér finnst skemmtilegasta serían er
Special Victims Unit en þar eru löggurnar einna eðlilegastar og þar fer rapparinn Ice-T með hlutverk eins þeirra. Þar eru löggurnar fjórar og allar jafnar. Saksóknarinn er svo hörkugella sem kallar ekki allt ömmu sína. Þessir þættir eru samt sýndir á þannig tímum að ég virðist alltaf missa af þeim, annaðhvort á laugardagskvöldum þegar ég horfi yfirleitt ekki á sjónvarp eða sunnudögum á sama tíma og 24!
Briscoe í kvöld... missi samt af honum.