8.7.04

Tveir skautar

Einhvers staðar var ég búin að segjast ætla að blogga um tölur og fleira en lítið hefur farið fyrir tölubloggi. Dæmin sem maður sér á mbl.is eru sum hver skrautleg og ekki alveg hugsuð til enda. Sem dæmi er eftirfarandi setning:

Alls voru 136.293 manns á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum þremur og Suðvesturkjördæmi en talningu atkvæða er lokið í þeim.

Hvernig segir maður svona lagað? Níutíu og þrír/þrjú/þrenn manns?
Annað dæmi um pirrandi setningar er:

Flugið mun spara viðskiptavinum flugfélagsins allt upp í 4. klukkustundir, borið saman við flug þar sem millilent er einu sinni. Flugvélin fer yfir um 16,600 km. á ferð sinni fram og til baka en í henni eru 181. sæti og boðið upp á svefnaðstöðu á fyrsta farrými.

Hér er bæði kílómetrafjöldinn rangur (sextán komma sex hundruð), það á ekki að vera punktur á eftir km OG fjöldi sæta og fjöldi klukkustunda eiga ekki að vera með punkti - þetta myndi lesast: hundrað áttugasta og fyrsta sæti! Dæmi um setningar af þessu tagi eru nokkur og þar sem ég hef þetta inni í mínu gagnasafni ruglar þetta öllu - hjá mér eru tölur með punkti á eftir yfirleitt raðtölur.

Þá er það samt aðalvandamálið: tvær/tvennar. Maður kaupir tvenn skæri og getur unnið til fernra verðlauna en kaupir maður þá ekki eins tuttugu og tvenn skæri og vinnur til þrjátíu og fernra verðlauna? Hljómar asnalega en ætti samt að vera rétt. Fólk ruglar mikið með þetta og sá ég á fyrrnefndu mbl.is fyrirsögnina: Maður dæmdur fyrir tvennar árásir. Hálftíma seinna var svo búið að breyta því réttilega í tvær árásir. Flottast fannst mér þó þegar stúlkan í þættinum Prófíl á Popptíví kynnti að verðlaun fyrir e-n leik væru tveir skautar! Soldið hallærislegt að gefa einn skauta, er það ekki?

Engin ummæli: