1.7.04
Bótfolti
Eins og ég er nú búin að fylgjast nokkuð samviskusamlega með EM í fótbolta þá missi ég af aðalleikjunum, leiknum í kvöld og sjálfum úrslitaleiknum! Ég sá leikinn í gær og skildi satt að segja ekki alveg þetta með hvað Portúgalarnir eiga að vera sætir - hvað er málið með hárbönd í fótbolta? Bæði Beckham og Zidane snoðuðu sig fyrir keppnina og það hefðu fleiri mátt gera! Hins vegar var svosum allt í lagi að sjá Ronaldo fagna marki sínu með því að fara úr að ofan, hann er samt svo ungur að það var nú ekki stingandi strá á honum! Í kvöld var ég búin að lofa Þórdísi frænku að bjóða henni í bíó og þar sem ég er búin að svíkja það tvo daga í vikunni þýðir ekkert að svíkjast um núna. Ætlunin er að fara á Mean Girls og fær sú mynd raunar ágætis dóma þannig að það verður gaman. Á sunnudaginn fer ég svo á Metallicu og þori ég ekki að treysta á að fara strax eftir leik, það dettur örugglega fleirum í hug að gera það - kannski nokkur þúsund manns! Kannski verður leikurinn á risaskjá í Egilshöll?
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli