5.7.04

Einn og hálfur

Einn og hálfur tími úr Grafarvogi í Vesturbæinn. Þrjú korter úr Laufengi í Spöngina (á að taka 2 mínútur). Svo frétti ég að hin leiðin hefði sennilegast verið fljótlegri. Grrr. En svo sannarlega þess virði. Tónleikarnir voru frábærir og kallarnir langt frá því að vera útbrunnir eftir 22 ár í bransanum. Enda komnir með ansi góða reynslu í þessu tónleikastússi líka. siggimus á reyndar ágætis lýsingu á spjalli söngvarans á milli laga, kannski eru þeir orðnir soldið meyrir - ég veit ekki. Lögin sem þeir tóku voru líka snilld og ekki of mikið af nýrri lögum eins og ég óttaðist. Gaman að sjá hvað Egilshöllin virkaði vel fyrir svona stórtónleika. Sviðið var 2,40 á hæð, á meðan sviðið í Laugardalshöllinni er sennilega meter lægra, þannig að maður sá alltaf eitthvað - mjög gott fyrir lágvaxið fólk! Eina klúðrið var að hvergi var auglýst að ekki mætti koma með töskur inn í Höllina þannig að skellt var upp töskugeymslu í einum gámi fyrir utan og fyrir 200 kr. gastu geymst töskuna þar og reynt svo að ná í hana eftir tónleikana ásamt hinum nokkur þúsundunum sem ætluðu sér það sama! Sem betur fer var Svala svo sniðug að hlaupa með okkar dót alla leið upp í bíl þannig að við komumst beint í bílinn eftir tónleikana.

Niðurstaða: Einir allra bestu tónleikar sem ég hef farið á!

En heldur Lars virkilega að við lítum upp til Dana???

Engin ummæli: