6.7.04

Kaffi

Orð vikunnar hjá Orðabók Háskólans er kaffi. Ég er að spá í að byrja að drekka kaffi aftur, a.m.k. í vinnunni þar sem kaffivélin malar afar ljúffengt kaffi. Ég hef ekki getað drukkið kaffi síðan í menntaskóla en þá held ég því fram að ég hafi drukkið yfir mig af vondu kaffi á Café au lait. Verstir voru föstudagarnir þegar jafnvel var skrópað í síðasta tíma til að fá sæti á kaffihúsinu, um hálftvö. Þá pantaði maður gjarnan langloku og Pepsi og svo kaffi sem maður fékk fría áfyllingu á það sem eftir var dags. Um klukkan fimm var svo haldið á síðdegistónleika í Hinu húsinu þar sem maður skalf eftir allt koffínið við rokkmúsík. Já, þeir gömlu, góðu dagar...

Engin ummæli: