2.7.04

Föstudagur

Strax aftur kominn föstudagur og enn ein helgin framundan. Ekki það að ég kvarti yfir því en það er bara allt í einu kominn júlí og ég ekkert farin að gera af viti! Einhverra hluta vegna er þetta alltaf svona hvort sem er um sumar eða vetur. Hver kannast ekki við þá tilfinningu að önnin í skólanum sé allt í einu hálfnuð og maður ekkert farinn að læra? Ég lendi a.m.k. mjög oft í þessu en sem betur fer hefur mér tekist að klára alltaf á síðustu stundu. Það er kannski bara málið, ég vinn best á síðustu stundu og klára ekkert hlutina fyrr en þá en þeir virðast samt alltaf smella saman á tilsettum tíma. Þá er verkefnið kannski búið að lúra í undirmeðvitundinni í langan tíma og þegar maður sest niður við að skrifa þá kemur alltaf eitthvað. Svo er það nú bara misgott eftir því hvernig liggur á manni... Annars góð helgi framundan og kannski gerast einhverjir hlutir í kollinum á manni á meðan.

Engin ummæli: