8.9.04

Heim

Þá er þessari vitleysu lokið og alvara lífsins að taka við. Nú er það bara skóli, kennsla og vinna á fullu. Og úti bylur regnið á glugganum... úff. En fríið var yndislegt og afar nauðsynlegt fyrir líkama og sál. Ég læt nokkrar myndir flakka með og af þeim má sjá að þetta snerist mest um sólbað og drykkju - eins og almennileg frí eiga að gera!




Cocoa Puffs lestin

Með þessu fórum við í bæinn daglega

Image Hosted by ImageShack.us

Lesið við hótelið

Ég sit ofan í sundlauginni!

Sundlaugarbarinn

Komið inn í bæinn

Nessebar

Svona býr fólkið þar

Lödur í Nessebar

Meiri lada

Löggan alltaf traust

Ahhh

Útsýnið af svölunum okkar

Og svona gekk lífið nú bara fyrir sig dag eftir dag. Við enduðum svo í Kaupmannahöfn þar sem við nutum lífsins í Tívolí (nýi rússíbaninn er geggjaður!), á Strikinu, í Kongens Have, Nýhöfn og almennt í góðum fílíng bara.

6.9.04

Tìvolì tìvolì tìvolì-lì-lì!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

5.9.04


Sidasti kokkteillinn i Bulgariu
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

4.9.04

Smulgaria

Sidasti dagurinn herna er ekki heitur, thad er eiginlega bara gott ad thad er skyjad nuna, annars vaeri ekki lift. Hongum bara a hotelinu i dag thar sem vid forum um 7 hedan. Eins og eg sagdi her adur tha er thetta alveg ordid gott, eg hefdi ekki viljad vera lengur herna. Ekki thad ad thetta hafi verid leidinlegt, alls ekki, en madur er odinn threyttur a lelegum hushljomsveitum a hverjum einasta veitingastad (nema i Nessebar) og almennt lelegri og havaerri tonlist ut um allt. Svo er madur buinn ad fa yfir sig nog af Thjodverjum. Mikid hrikalega eru their leidinlegir turistar! Their eru svo frekir og hrokafullir ad thad halfa vaeri nog... uff! Og tho ad throngar speedo-sundskylur, yfirvaraskegg og sitt ad aftan se fyndid i svona viku, tha getur madur nu ekki endalaust hlegid ad thvi. Tho ad thad se eitthvad i tisku nuna... Thad verdur gaman ad koma til Kaupmannahafnar og stoppa thar i nokkra daga, thar heyrir madur vonandi goda tonlist - eda enga tonlist eins og a Naesta bar. Og ser venjulegt folk. Ekki halfbert i Speedo. Tschus von Sonnenstrand!
Thà er sìdasti dagurinn ì Bùlgarìu runninn upp. Sìdasta vika hefur verid mjög fljòt ad lìda en nù er thetta ordid gott. Gaman ad koma til Köben og stoppa thar.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

3.9.04

Bingòkvöld! Vùhù!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

òmægod! Ég heyrdi ìslensku! Eins gott ad passa sig à hvad madur segir...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

1.9.04

Erum ì Nessebar ad fara ad borda og hvìlìk fegurd! Sòlin er farin ad lækka à lofti og vid höfum geggjad ùtsyni yfir sjòinn og sjàlfa Sòlarströnd.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

31.8.04

Bingò smingò, unnum ekkert. Jòi komst thò ansi nàlægt thvì ad vinna vìnflöskur tvisvar. Einn sèns eftir à föstudag!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Heitt... get ekki... hugsad...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

30.8.04

Bulgaria

Onnur tilraun til ad blogga hedan fra Bulgariu. Eg er fluin inn ur hitanum en thad spair vist rigningu a eftir thannig ad thad kaelir mann adeins fyrir kvoldmatinn. Eg sa ad einhver var farinn ad spyrja um bingoid sem eg nefndi herna fyrr. Thannig var thad nu ad i sidustu viku forum vid a ansi finan stad sem heitir Tropicana og er adallega sottur af Bretum. Finn stadur sem vid hofum oft bordad a. Thar sem vid erum ad klara matinn okkar setjast hja okkur tvenn skosk hjon sem spyrja svo hvort ad vid seum ad fara ad spila i bingoinu. Hvada bingo segjum vid audvitad en tha kemur i ljos ad tvisvar i viku fyllist stadurinn af odum Bretum sem vilja spila bingo! Ad sjalfsogdu keyptum vid okkur mida og spiludum med af kappi. Spilad var a 5 mida, ekki spjold, og a fyrstu 4 midunum voru verdlaunin ogrynnin oll af afengi - naestsidasti midinn gaf t.d. 8 afengisfloskur i verdlaun held eg, gin, vodki, koniak, visky, kampavin o.fl. Vid vorum eiginlega hraeddust vid ad vinna thad! Adalverdlaunin voru hins vegar peningaverdlaun sem fara eftir thvi hversu margir taka thatt. Thetta kvold var metkvold og verdlaunin einar 1500 levur (1 leva = 45 kr.). Thad hefdi nu verid gaman ad enda soguna a thvi ad segja ad vid hefdum unnid en svo var nu ekki, eg hef alltaf verid oheppin i bingoi. Thetta var hins vegar mjog gaman og vid aetlum eiginlega aftur annad kvold... Rosa djamm sem sagt a okkur!

Eg aetla svo rett ad vona ad thessi saga komist inn annars verd eg frekar ful!
Erum aftur komin à sundlaugarbakkann ad kæla okkur nidur en förum örugglega aftur ì Nessebar ad skoda meira àdur en vid förum heim.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Nessebar er alveg ofsalega fallegur bær thar sem fornminjar eru à hverju götuhorni. òlìkt Sunny Beach bùa lìka adrir en tùristar thar!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Sennilega er heitasti dagurinn hingad til ì dag og thà fòrum vid à stjà! Vid fòrum til Nessebar sem er einn elsti bær Evròpu, frà thvì löngu fyrir Krist.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

28.8.04

Thad hefur lìtid farid fyrir sòl ì dag. Vöknudum vid svakalegt thrumuvedur ì nòtt og thurftum thvì ad hvìla okkur vel ì dag. Gerdum thvì ekkert!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

26.8.04

Gràtgràtgràt! Ég var bùin ad skrifa fullt skemmtilegt à bloggid en svo gat ég ekki sett thad inn og allt thurrkadist ùt! Pirr:-(

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Sama blìdan hèr og gott ad sòla sig. Thad er internet à hòtelinu thannig ad næst thegar èg kìki à thad ætla èg ad blogga um bingò og fleira!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

25.8.04

Erum ekki daud, bara löt og med sòlsting!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

24.8.04

Jà, og thetta er bara lìkamlegt hjà okkur Boris! Ekkert meira!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Loksins brunnum vid adeins hèrna ì sòlinni! Aloe vera bjargar thvì nù. Annars gott tsjill à strandbar, nennum ekki ad gera neitt gàfulegt ì dag...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Bongòblìda ì dag og vid liggjum eins og skötur à sòlstòlum. Bùid ad rigna med thrumum og eldingum tvö kvöld og gàrungarnir farnir ad kalla stadinn Rainy Beach!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

23.8.04

Svo fòr èg nù ì nudd à hòtelinu ì morgun. Nuddarinn heitir Boris og hlustadi à ljòmandi fìna Whitney Houston kassettu à medan hann nuddadi mig! Fìnn nàungi!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Thà er adeins farid ad kòlna, smà vindur og frekar skyjad. ì gærkvöldi fòrum vid ì Sunny Beach ad borda en thangad komumst vid med "cocoa puffs" lestinni!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Eftir matinn ì gær skall svo à thrumuvedur fram à kvöld en thad lìtur nù ekki ùt fyrir svoleidis ì dag, ekki nògu heitt.

SMS sendi ég
Powered by Hexia

22.8.04

Er ekki bara fyndid ad Sex on the beach kosti 200 kr.? Kokkteillinn sko...

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Ahhh, lìfid er yndislegt! Hòtelid er alveg fràbært og hitinn um 30 stig thar sem vid sitjum vid sundlaugarbakkann. Bjòrinn à minibarnum kostar svo bara 90 kr!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

20.8.04


Godur i Koben!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

19.8.04

Útlönd!

Á morgun fer ég til útlanda! Jibbíjei!!!! Köben á morgun, Sunny Beach Búlgaríu á laugardag. Kem ekkert aftur fyrr en í september einhvern tímann. Ég ætla samt að reyna að setja eitthvað skemmtilegt hérna inn á meðan, senda kannski eitt og eitt sms og hver veit nema þeir séu svo tæknivæddir í Búlgaríu að það séu netkaffihús þar? Hins vegar verða myndir hér og á myndasíðunni okkar ekki frá Búlgaríu þar sem ekki er gprs samningur við það land. Það koma samt örugglega myndir frá Köben, því get ég lofað. Síjú!

Verðbréfablogg

Þetta er alveg furðulegt. Allt í einu er bloggið mitt komið í e-r verðbréfaviðskipti! Hmm, skil ekki alveg. Kannski að vinkonan mín viðskiptafræðingurinn skilji eitthvað í þessu?

18.8.04

Brennslan

Jamm, bara tveir dagar í utanlandsferð. Ég er orðin svo spennt og kvíðin og alltsaman en hlakka bara mest til samt. Stúss í gangi þessa dagana, kaupa gjaldeyri, fara í apótek, taka bækur á bókasafni, þvo og pakka! Ekki leiðinlegt stúss samt.

Fór annars á Kaffibrennsluna í gærkvöldi til að borða en þangað hef ég ekki farið í einhver ár. Soldið sorglegt hvað sá staður er staðnaður, það hefur nákvæmlega ekkert verið gert fyrir hann síðan hann var opnaður. Það er allt orðið frekar reykmettað og sjoppulegt þarna. Maturinn var alveg ágætur samt en við þurftum að bíða í 40 mínútur eftir honum - ekki vinsælt hjá svöngum stúlkum. Ég geri ráð fyrir að það hafi þurft að slátra kjúklingnum fyrst en við það hefur honum brugðið svo að bringurnar skruppu saman, a.m.k. voru þær ekki stórar hjá okkur. Mæli sem sagt ekki með Brennslunni ef þið viljið fá kaffihúsamat, þá vel ég frekar gömlu góðu Vegamót.

2 dagar...

Sól!

Veðurspáin næstu daga í Búlgaríu!

16.8.04

Helgin

Jæja, það fer nú bara hrollur um mann í þessum 14 stiga hita úti... kröfurnar eru orðnar svo svakalegar. Þetta er kannski ágætt, það er þá kominn vinnufriður fyrir veðri og að baki alveg frábær löng helgi.

Eins og sést á færslunni að neðan stakk ég af úr bænum á fimmtudag, ég hreinlega gat ekki hugsað mér að hanga í borginni vitandi af iðandi lífi í sveitinni og Jóa í veiðitúr. Maður verður stundum að hugsa um andlega vellíðan líka. Fram á laugardag átti ég yndislegar stundir í sveitinni þar sem var setið á nýlegum palli í Dísukoti, legið á dýnu í sólbaði og farið í lautartúr og berjamó inn með Fossá. Og að sjálfsögðu snæddur ljúffengur matur úr potti og af grilli. Á laugardag fór ég síðan austur á bóginn þar sem við Anna Katrín, Svala og Kata dvöldum yfir nótt að Loftsölum við Dyrhólaey, stórkostlegu húsi sem frænka Önnu var svo elskuleg að lána okkur. Þar tók við meiri sól og blíða, sólbað, öl, vín og góður matur að hætti snilldarkokksins Önnu Katrínar. Útsýnið var til jökla, Reynisdranga, Dyrhólaeyjar og sjávar og alveg einstaklega gott fyrir líkama og sál að fá að koma á þennan stað. Því miður þá varð stafræna vélin batteríslaus og því ekki hægt að birta myndir hér af húsinu og umhverfi þess. Vonandi náði Svala nokkrum myndum... Takk fyrir mig Anna Katrín!

12.8.04

Ég gefst upp! Farin ì sveitina!

SMS sendi ég
Powered by Hexia

Heitt

Sól sól sól

Vá hvað er erfitt að hugsa í svona hita. Það eina sem kemst að er „úff, hvað mér er eitthvað heitt...“ Er að rembast við að gera gáfulegar reglur um tölustafi eins og: „ Ef á eftir tölustaf kemur ára/árs/mánaða/vetra þá er talan í eignarfalli karlkyni“. Hljómar alveg ágætlega þar til fólk fer að skrifa 4ra og 2ja og svoleiðis vitleysu... Samt svo fáar tölur þannig. Ég ætla nú ekki að hanga lengi í dag, það er bara allt of gott veður! Svo eru eitthvað grunsamlega fáir mættir hérna, kannski er frí og ég vissi ekki af því ;o)

11.8.04

Bleik

Rosa gaman á Pink! Allir í bleiku nema Pink sjálf. Þótt það sjáist kannski ekki á myndinni af okkur frænkum þá var ég sko með eitthvað bleikt, ég var með bleika teygju í hárinu og með bleikt naglalakk! Þetta var samt mjög fyndið hvað allar stelpurnar voru í einhverju bleiku... Hitinn var þó svakalegur sökum hitabylgju og leið yfir margar smápíurnar. Hins vegar var mjög skrýtið að það var ekkert uppklapp! Reyndar var hún búin með alla slagarana þannig að ég veit ekki hvað hún hefði átt að taka í viðbót. Við ætluðum að vera rosa sniðugar og fara fyrir uppklapp svo við lentum nú ekki í einhverri örtröð á leiðinni út en þá vara bara kveikt og opnað út... mjög skrýtið allt.

Leiðindadagur framundan í fallegu veðri. Jarðarför á eftir í Grafarvogi og í Mogganum stendur að ég eigi barn með einhverjum Ingva og að Jói búi með Ásdísi. Soldið leiðinlegt samt að Ásdís skyldi svo stinga af með Ingva og barnið mitt til Danmerkur - skamm skamm!

10.8.04


#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

#
Þetta sagði ég
Powered by Hexia

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

Þriðjudagur

Vú, hitabylgja á þriðjudegi - týpískt! Og það á þriðjudegi sem ég ætla að gera rosa mikið, er að klára í vinnunni og fer svo á Grensás í sundleikfimi - sem er inni :o( Verð þar til 3 (þrír, þrjár, þrjú?) og sæki svo Þórdísi sem er að koma í bæinn að sjá Pink! Við ætlum að kaupa e-ð bleikt fyrir tónleikana, ég á ekkert í bleiku þannig að það er möst.

Helgin var stórfín, ekki mikið mál að passa þessi börn! Ég ætla bara rétt að vona að mín börn verði svona mikil fyrirmyndarbörn. Það var reyndar hitabylgja í sveitinni um helgina, hitinn fór í 23 stig en það vantaði samt sólina. Það hefði verið fínt að næla sér í smálit áður en haldið er út, þá brennur maður minna þar. Jæja, farin!

6.8.04

2 vikur

Mmm!
Hótel Kotva, Búlgaríu

Í dag eru bara tvær vikur í sólina! Að ofan má sjá hvernig við Jói ætlum að sitja við sundlaugina í góða veðrinu - ekki þrumuveðrinu sem virðist geisa þar þessa dagana samt. Ég bendi áhugasömum á ferðatöskutilboð í Byko, það er alveg hægt að koma einhverjum í þær, ég fæ allavega töskur þaðan í afmælisgjöf ;o)

Image Hosted by ImageShack.us

Grislingarnir Árni Steinn og Heiða María


Enn ein sveitahelgin framundan, ég ætla að hjálpa til með tvo grislinga sem verða þar, aðallega verð ég að elta þennan minni, stóra systirin bjargar sér nú sjálf enda vinnukona hjá Önnu frænku sinni! Hafið það gott um helgina, ég ætla allavega að gera það :o)

Nanananana

Smá stuð á föstudegi (hafið hljóðið á).

5.8.04

Voldemort

Sæti...

Ralph Fiennes á víst að leika Voldemort! Að mínu mati er þessi leikari alltof sætur til að leika þetta illmenni... ef menni skyldi kalla. Reyndar hefur hann nú ekki alltaf „leikið“ fallega menn, eins og t.d. í Red Dragon og hann er nú alveg góður leikari líka. Og mynd með Gary Oldman og Ralph Fiennes saman, namminamm:p Hlakka til!

Topplaus

Ætli þetta sé svona líka í Búlgaríu? Ef svo er þá er nú eins gott að fara að koma sér í form!

4.8.04

Jæja stelpur

Er þetta nóg?

3.8.04

Þriðjudagur

Skrýtið að mæta aftur í vinnuna eftir langa helgi sem þessa, frí á föstudag og mánudag og svo allt í einu kominn þriðjudagur. Reyndar var það bara fínt, ég er að ná mér upp úr verkefnakrísu síðustu viku og er að lesa yfir allar setningarnar, leiðrétta og flokka - svaka fjör (í alvörunni!). Helgin var líka svo róleg að það var ekki til slappleiki í mér í morgun. Vídeó á föstudagskvöld, matur hjá pabba og mömmu í sveitinni laugardagskvöld (farið að sofa um miðnætti) og meira vídeó sunnudagskvöld. Horfði á The Missing, Dawn of the Dead og Mystic River (loksins!) að ógleymdri Election í sjónvarpinu í gær. Svona helgar eru nauðsynlegar líka!

Vei!

Nú get ég sent myndir beint á bloggið mitt! Það borgar sig að vera að vinna með fólkinu sem stjórnar þessu :o)

Myndina sendi Ég
Powered by Hexia

31.7.04

Myndz

Nýja græjan


Þá er kominn myndavélarsími á heimilið. Jói fékk sér nýjan síma í gær þar sem sá gamli var algerlega að niðurlotum kominn (ekki einu sinni hægt að senda sms!) og kom þá tilboð Símans á símum að góðum notum. Þar sem ég get ekki sett myndir úr hans síma á bloggið mitt (allavega tókst það ekki í gær) þá opnuðum við nýja síðu með myndum úr símanum. Vonandi verður svo hægt að setja þar inn myndir frá Búlgaríu en til þess þarf víst að vera GPRS... held ég. Það kemur bara í ljós.

30.7.04

Jæja þá...

Ég vildi kannski pínu að ég væri fyrir norðan eða austan...

Dísan 2004

Ooojj hvað mig langar ekki að vera í útilegu núna! Það stefnir í mestu rólegheitahelgi hjá mér, enda var vel tekið á því þá seinustu... Ein hugmyndin var reyndar að fara á Höfn en það hreinlega spáir ekki nógu vel til að hendast þangað. Fyrir utan alla umferðina á vegunum og allt það. Í bænum verða fullt af Innipúkum en ég nenni ekki þangað þannig að það endar sennilegast á því að við förum í Kjósina þar sem Dísan 2004 verður haldin í Dísukoti! Mjög kósí þar sem bara pabbi og mamma verða heima um helgina... Ef fólk er á ferðinni um Kjósina má alltaf hafa samband og fá að henda á grill!

Svo er þetta ekki svo galið fyrir þá sem eru á ferðinni!

29.7.04

Það hlaut að vera...

Það var verið að benda mér á frétt þar sem segir að hætt hafi verið við seinni tónleika Pink og 50 Cent verði færðir í Laugardalshöllina í staðinn fyrir Egilshöll. Ég get nú ekki sagt að það komi mér á óvart. Þetta tónleikaár er búið að vera með ólíkindum og ljóst að ekki getur orðið endalaust uppselt á þetta alltsaman. 50 Cent hefur ekki jafnbreiðan aðdáendahóp og t.d. Metallica sem er búin að vera starfandi í yfir 20 ár. Þótt bæði 50 Cent og Pink séu risastór úti í heimi og kannski hér líka þá er þetta bara svo lítið land að ekki er hægt að ætlast til þess að 10.000 manns sjái hvora tónleika á sama tíma eftir allt sem er búið að vera! Sjálf er ég svo að fara á Pink, pabbi bauð mér og Þórdísi frænku sem er 11 ára og er að fara á sína fyrstu rokktónleika. Ég er rosalega stolt að vera sú sem fer með henni!

Bleika pían

28.7.04

Krísa

Ég er haldin alvarlegri verkefnakrísu þessa dagana. Vissulega fann ég eitthvað lesefni og get dundað mér við að finna meira á næstunni en hins vegar er ég komin með nokkur þúsund setningar sem ég veit bara ekkert hvað ég á að gera við! Það er svo margt sem ég þarf að gera en veit ekki hvar ég á að byrja. Þá blogga ég bara á meðan.

Á föstudaginn eru svo þrjár vikur í þetta! Þá verður gaman að lifa. Tvær vikur í (vonandi) sólinni í Búlgaríu, syndandi í Svartahafinu og drekkandi Zagorka. Mmmm.

Hvar

Já og svo er auðvitað hvar.is. Alltaf er ég seinust allra að frétta af svona hlutum eða allavega að tileinka mér að nota þá.

Svo er Hvar líka staður í Króatíu eins og Viljandi er staður í Eistlandi.

27.7.04

Kluwer

Alltaf lærir maður nú eitthvað nýtt. Ég er búin að vera að leita að greinum til að lesa í sambandi við lokaverkefnið mitt og satt að segja ekki fundið mikið þar sem Þjóðarbókhlaðan hefur takmarkað efni um tungutækni að geyma. Ég hef legið á netinu og gúgglað á fullu og rekist á eitt og annað þar en bölva því alltaf annað slagið að hafa ekki aðgang að almennilegum greinum hér á þessu skeri. Þá kemur snillingurinn hún Helga og spyr „hefurðu ekkert fundið á Kluwer?“ „Hu?“ spyr ég auðvitað og kem alveg af fjöllum. Þá er til nokkuð sem heitir Kluwer Online sem hefur að geyma fjöldann allan af hvers kyns tímaritum og það besta er að aðgangur að greinunum er öllum Íslendingum opinn, þökk sé Menntamálaráðuneytinu okkar! Þar er meðal annars að finna International Journal of Speech Technology þar sem margt kræsilegt er að skoða. Reyndar rámaði mig eitthvað í að hafa séð eitthvað um svona gagnasöfn á vef Bókhlöðunnar (undir „gagnasöfn!“) en þar er svo mikið af alls konar dóti að maður veit ekkert hvað er gott að nota. Ef þið eruð í hvers kyns rannsóknarvinnu eða bara langar að nördast kíkið þá á þetta.

Blond

Er Orlando Bloom að virka sem James Bond? Reyndar á framhaldsskólaárunum þannig að það er kannski í lagi. Samt...

25.7.04

Sunnudagur

Jájá, alltaf sniðugt að geta sent sms beint á bloggið... ég er bara pínu fegin að eiga ekki myndavélarsíma! Ég vil líka taka það fram að síðustu tvö skilaboðin voru ekki skrifuð af mér heldur stal einhver ónefnd símanum mínum til að skrifa (blikk blikk...) Annars var mjög gaman, matur hér heima þar sem við buðum sænsk/íslensku pari í mat og eftir það var ég svo kurteis að stinga af til að fara í partý hjá Önnu Katrínu. Þar kom bæjarpúkinn upp í mér og fór ég því á Sirkus. Fyrri færslur segja allt um gleðina þar!

Í dag var nú öllu heilsusamlegri afþreying í gangi þar sem við fórum í sveitina með Snorra litla (4 ára)  bróðursyni Jóa og foreldrum hans og ömmu.
 
Snorri í sveitinni
Þetta er hann Snorri
 
Það þótti þeim litla ekki leiðinlegt - einn tuddi skírður (Skorri), farið á hestbak og litlir fiskar veiddir.
 
Snorri og Ingvi á hestbaki
Hetjan á hestbaki

24.7.04

Kvedja sirkuspìurnar

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Bitch i want you bitch

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Ég elska vini mìna!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Stòladans!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Vìha! Er à djamminu:-)

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Vì!

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

23.7.04

Arrrgh! Hata Ikea ì augnablikinu:-( Ætladi ad kaupa fleiri geisladiskahillur eins og vid eigum en thà er sà litur hættur! Typìskt...

SMS sendi Valdís
Powered by Hexia

Ekki alveg...

Ekki myndi ég tíma rauðvíninu mínu í eitthvað svona!

Jahérna!

Fyrst þetta og nú þetta! Hvað er í gangi?

22.7.04

Likkvid lönsj

O, það er svo gaman á fimmtudögum þegar það er sól! Þá fara Hexarar gjarnan í „liquid lunch“ á Vegamótum sem er bara snilld. Nema núna fór sólin um hádegi og nokkrir litlir regndropar skvettust á borðið en þá var bara farið inn. Snilldarmatur eins og alltaf. Er farin heim að leggja mig eftir ósköpin...

Jafnrétti...

Hvaða rembingur er nú þetta svona á 21. öldinni??

Myndir

Það eru komnar fleiri myndir af Snæfellsnesi hjá Svölu. Það sést betur þar hvað var svakalega fallegt þarna! Já, og hvað ég á svakalega fallega vini;)

Veiðiferð

Mmm, fór í fyrstu veiðiferð sumarsins í gærkvöldi, alla leið upp í Elliðavatn. Við skötuhjúin drifum okkur af stað í góða veðrinu og komum við að kaupa nesti - mjög vondan Subway. Er alveg komin með ógeð af Subway í bili. Héldum svo að vatninu og plöntuðum okkur þar með stöng og makríl (sem beitu, ekki nesti). Fiskurinn ullaði mikið á okkur og borðaði flugur en ekki vildi hann bíta á. Á endanum þegar ekki var orðið þverfótað fyrir forvitnum krökkum og öðrum veiðimönnum gáfumst við upp og fórum heim. Yndislegur bíltúr samt sem áður og hressandi að sitja aðeins úti og hlusta á fuglasöng og horfa á kanínur skoppa um... hlakka til að komast í alvöru veiði í haust.

21.7.04

""

Já, og hvernig gerir maður íslenskar gæsalappir??

Döö

Gemsinn minn er búinn að vera skrýtinn í allan dag, ég hef ekki getað hringt úr honum og það er eins og það sé aldrei samband, kemur bara „no access“ á skjáinn. Ég hringi í þjónustuver Símans og leita hjálpar og þar er mér bent á að slökkva á símanum og kveikja aftur. Auðvitað var það málið! Það virkaði! Ég held alltaf að það sé eitthvað meira vesen hvort sem er með tölvuna eða símann! Vildi bara deila þessu með fólki - ef eitthvað bilar prófiði þá að slökkva og kveikja á tækinu, það virkar oft...

Sólbað

Æ, ég vildi að svalirnar mínar myndu ekki snúa í norður... þá væri ég í sólbaði. Ætla samt að fara út á eftir, alveg satt!

20.7.04

Símblogg

Snillingarnir í Hex eru með símblogg sem ég mæli með. Sérstaklega skemmtilegt ef maður er með myndavélasíma (sem ég á eftir að fá mér...). Maður skráir sig á simblogg.is og getur þá sent sms á bloggið, talað inn á það eða sent myndir beint úr myndavélasíma. Ef þið eruð að blogga, tékkið á þessu.

#
Talskilaboð sendi Valdís
Powered by Hexia
Nù get èg bloggad med sms:-)

Örbloggfærslu sendi Valdís
Powered by Hexia

Þessir Kanar...

Aumingja Linda!

19.7.04

Snæfellsnes

Snæfellsjökull og Arnarstapi  
Snæfellsjökull í öllu sínu veldi

Þá er helginni lokið og þvílík helgi! Ég lagði af stað á Snæfellsnes á laugardag í einstakri veðurblíðu og byrjaði á að koma við hjá Jóa og strákunum þar sem þeir voru í veiðiferð við Núpá. Sögur af þeirri ferð má nánar lesa um hjá siggamusi. Þar fékk ég skilaboð um að göngugarparnir væru hálfnaðir með ferð sína yfir Jökulháls þannig að ég brunaði af stað til að hitta þau. Ég fór á mínum fjallabíl leiðina sem þau gengu, framhjá Sönghelli alveg upp að jöklinum og eftir hverja brekku tók ég andköf yfir náttúrufegurðinni og þótt ég væri pínu fegin að hafa ekki þurft að labba allar þessar brekkur hefði það nú samt verið gaman að getað notið útsýnisins í rólegheitunum. Í staðinn stöðvaði ég bílinn öðru hverju til að vippa mér út og taka myndir sem  þó náðu ekki alveg að fanga fegurðina.

Útsýnið í austurátt Útsýni til Reykjavíkur Séð yfir Arnarstapa Toppurinn á jöklinum
Útsýnið af toppnum

Á niðurleiðinni hitti ég þreytta en sæla göngugarpa sem þáðu far síðasta spölinn þar sem tvísýnt var um að næðist fyrir lokun í sundlaugina í Ólafsvík. Það hafðist nú allt og var það vel þegið að skola rykið af sér þar.
 
Allir hreinir og fínir!  
Göngufólkið eftir sund

Þá var að ferja fólk á Arnarstapa þar sem enginn nennti að labba til baka (skil það nú ekki!). Ég keyrði með fullan bíl af fólki vestur fyrir nesið þannig að þegar komið var að Arnarstapa var búið að fara hringinn í kringum Snæfellsjökul - ekki slæmt dagsverk það.
 
 Snæi
Jökullinn hinum megin frá
 
Svo var grillað og drukkið og sungið fram á rauða nótt og í blíðviðrinu í gær fannst mér bara eins og ég hefði gengið með þeim alla leiðina. Kannski var það svefnleysið og gallaða vindsængin... kannski ekki. Hellnar voru skoðaðar í gær og síðan haldið heim á leið.
 
Grillið undirbúið Allir að grilla Hrafn sýndi snilldartakta Arnarstapi Arnarstapi Hellnar
 
Veðrið átti stóran hlut í því hversu ferðin var vel heppnuð en ekki minni hlut átti félagsskapurinn. Ég legg það hér með til að göngugarparnir velji sér alltaf gönguleiðir sem ég get líka farið í - á bíl.

16.7.04

Útilega!

Jæja, mín ætlar að skella sér í útilegu um helgina - já, í tjaldi og alltsaman. Reyndar eru allir þegar farnir af stað, allflestir sem lesa þetta reyndar... en ég ætla að slást í hópinn á morgun. Það á að skella sér á Snæfellsnesið og gista á Snjófelli við Arnarstapa. Hópurinn ætlar að ganga frá Arnarstapa yfir í Ólafsvík þá leið sem nefnist Jökulháls en það vill einmitt svo vel til að hægt er að keyra þá leið líka þannig að ég ætla að bruna framhjá þreyttum göngugörpum með ííískalt gos (hehe)! Ég hef heyrt að leiðin sé mjög falleg og í veðri eins og nú er þá sé útsýnið alveg frábært. Kannski maður pakki myndavélinni með og setji nokkrar góðar hér inn eftir helgina. Bon weekend!

Þið eruð að grínast...

Kynþokkafyllsta grænmetisætan!

15.7.04

Vondi kall

U, já...

Framtíðin?

Fyrir ykkur einhleypa fólkið er þetta málið...

Blátt áfram

Ég vil benda ykkur á síðuna www.blattafram.is og hvetja ykkur til að smella á "Hvað get ég gert" og gera eitthvað!

14.7.04

Lög og regla

Ég hef mjög svo gaman af hvers kyns glæpasögum, jafnt í formi bóka, þátta og kvikmynda. Meðal þess sem ég get setið límd yfir í sjónvarpi eru seríurnar Law and Order á Skjá 1 (einn/einum?). Í raun eru í gangi þrjár seríur, Law and Order, Law and Order:Special Victims Unit og Law and Order:Criminal Intent.

Í gærkvöldi horfði ég á þátt úr síðastnefndu seríunni sem mér finnst síst þessara þriggja. Þar fer löggan Goran með aðalhlutverk og hann er svo ótrúlega snjall að það hálfa væri alveg nóg. Raunar er hann svo snjall að hann veit allt manna best, þekkir hverja þá lykt sem hann finnur og sér á fólki hvort það segir satt eða ekki - það væri algjör óþarfi fyrir hann að hafa nokkurn aðstoðarmann á staðnum. Aðstoðarmenn Gorans eru konur, löggan Eames er hans aðalaðstoðarmaður en núna er hún víst ófrísk þannig að það er komin ný kona í afleysingar. Ef Eames fór í taugarnar á mér þá er þessi enn meira óþolandi. Eames segir svona augljósu hlutina eins og: "Ó, það er sko fótspor á gólfinu" en þá segir Goran: "Já, þetta eru greinilega sjaldgæfir gönguskór nr. 43 sem fást aðeins í búðinni hinum megin við götuna..." Nýja stúlkan er svipuð nema er látin vera enn heimskari en Eames enda virðist Goran vera nett pirraður á henni barasta. Og svo enda allir þættirnir eins - Goran bugar glæpamanninn með orðum þannig að hann getur ekki annað en játað glæpinn...

...these are their stories

Elsta serían er Law and Order og er þetta 15. þáttaröð hennar í sjónvarpi. Þess má geta að stundum er verið að sýna eldgamla þætti úr seríunni á Hallmark. Þar ræður ríkjum Briscoe lögreglumaður en hann virðist hafa verið í þáttunum ansi lengi, a.m.k. er hann á Hallmark þar sem verið er að sýna 5. þáttaröð. Nýir aðstoðarmenn koma þó reglulega í þættina og má m.a. nefna sjálfan Mr. Big úr Sex and the City og nú nýlega Benjamin Bratt. Lögmaðurinn Jack McCoy gegnir líka stóru hlutverki í þáttunum og eins og Briscoe virðist hann skipta reglulega um aðstoðarmenn sem iðulega eru kvenkyns.

Það sem mér finnst skemmtilegasta serían er Special Victims Unit en þar eru löggurnar einna eðlilegastar og þar fer rapparinn Ice-T með hlutverk eins þeirra. Þar eru löggurnar fjórar og allar jafnar. Saksóknarinn er svo hörkugella sem kallar ekki allt ömmu sína. Þessir þættir eru samt sýndir á þannig tímum að ég virðist alltaf missa af þeim, annaðhvort á laugardagskvöldum þegar ég horfi yfirleitt ekki á sjónvarp eða sunnudögum á sama tíma og 24!

Briscoe í kvöld... missi samt af honum.

Segir þessi frétt ykkur mikið?

Innlent| 14.7.2004 | 06:59

Tvennt tekið ölvað undir stýri í Kópavogi
Tvennt var tekið ölvað undir stýri í Kópavogi síðla nætur. Annars vegar var um að ræða ungan mann og hins vegar konu. (mbl.is)

Zzzz

Held að þetta sé að virka með kaffið. Ætla bara að fá mér ef ég er mjöööög syfjuð.

13.7.04

Kaffi...aftur

Ég er að spá í að hætta að drekka kaffi...aftur. Ég fæ mér einn bolla fyrir hádegi af rosalega góðu en mjög sterku kaffi í vinnunni og svo er ég svo upptjúnuð það sem eftir er dags og alveg fram á kvöld að ég get ekki sofnað á kvöldin! Kannski er það reyndar líka af því að ég næ mér oftast niður seinnipartinn og sofna aðeins þá en ég prófaði að drekka ekki kaffi í dag og er svei mér þá ögn þreyttari en í gærkvöldi... Sé til hvernig gengur í kvöld.

PJ pæja

Aðalrokkpæjan!

Mig langar í þessa plötu... Það er alltof dýrt að kaupa sér diska hérna þannig að ég verð að bíða þess að fara til útlanda í haust:(

12.7.04

Grrr

Þetta gerist greinilega ekki bara á Íslandi... Hvað verður langt þar til hin olíufélögin fara að dæmi Esso?

Essó hækkar bensín og olíur
Olíufélagið Essó hefur ákveðið að hækka lítrann af bensíni um tvær krónur, dísilolíu um eina krónu, flotaolíu og flotadísilolíu um 1,50 krónur. Að sögn félagsins skýra hækkanir heimsmarkaðsverðs á olíu að undanförnu þesar hækkanir.
(mbl.is)

Spiderman

Lói snýr aftur!

Fór á Spiderman í gær, full eftirvæntingar eftir að hafa lesið góða dóma um myndina. Fimm stjörnur í Mogganum - það þýðir bara að myndin hljóti að vera meistaraverk! Jújú, myndin var skemmtileg og allt það - en fimm stjörnur? Nei, ekki alveg. Frábær mynd engu að síður og gaman að sjá hana í bíó. Fannst þetta mjög sætt samt...

Helgin að öðru leyti skemmtileg, stórfjölskyldan mætt í sveitina og ekki á hverjum degi sem við erum öll systkinin saman hjá foreldrunum þar sem ein systir mín býr hinum megin á landinu með sinni fjölskyldu. Eitt stykki pallur smíðaður og að sjálfsögðu grillað á honum um kvöldið. Margar góðar helgar framundan þar!

9.7.04

Tíhíhí

Image Hosted by ImageShack.us
Margir menn þrá að vera 210 cm á hæð.

Sól sól

Sól og blíða og sveitahelgi framundan, það leggst ákaflega vel í mig. Ég ætla rétt að vona að sólin fari ekki á slaginu þrjú í dag og svo rigni alla helgina, einhvern veginn væri það svo týpískt. Þetta er líka svona dagur þar sem maður nennir ekki neinu, vill bara komast út og helst þá að klukkan sé orðin sex og ískaldur bjór í hendi...

Góða helgi!

8.7.04

Born to play

GAME BOY - Born to Play
A GAME-BOY. Youre like a tomboy without the love of sports. Reality sucks, but as long as you have your electronics you feel you can cope. Time goes unnoticed when youre locked in your room hooked up to your Nintendo, rocking to your favourite collection of guitar-driven albums.

Your virtues: Intelligence, sense-of-humour, individuality.
Your flaws: Inability to cope with real life, action-freak spirit, reclusive nature.

Your Personality type is the only type that would like this cool online gothic Game:
www.life-blood.vze.com
What kind of girl are you?
brought to you by Quizilla

Tveir skautar

Einhvers staðar var ég búin að segjast ætla að blogga um tölur og fleira en lítið hefur farið fyrir tölubloggi. Dæmin sem maður sér á mbl.is eru sum hver skrautleg og ekki alveg hugsuð til enda. Sem dæmi er eftirfarandi setning:

Alls voru 136.293 manns á kjörskrá í Reykjavíkurkjördæmunum þremur og Suðvesturkjördæmi en talningu atkvæða er lokið í þeim.

Hvernig segir maður svona lagað? Níutíu og þrír/þrjú/þrenn manns?
Annað dæmi um pirrandi setningar er:

Flugið mun spara viðskiptavinum flugfélagsins allt upp í 4. klukkustundir, borið saman við flug þar sem millilent er einu sinni. Flugvélin fer yfir um 16,600 km. á ferð sinni fram og til baka en í henni eru 181. sæti og boðið upp á svefnaðstöðu á fyrsta farrými.

Hér er bæði kílómetrafjöldinn rangur (sextán komma sex hundruð), það á ekki að vera punktur á eftir km OG fjöldi sæta og fjöldi klukkustunda eiga ekki að vera með punkti - þetta myndi lesast: hundrað áttugasta og fyrsta sæti! Dæmi um setningar af þessu tagi eru nokkur og þar sem ég hef þetta inni í mínu gagnasafni ruglar þetta öllu - hjá mér eru tölur með punkti á eftir yfirleitt raðtölur.

Þá er það samt aðalvandamálið: tvær/tvennar. Maður kaupir tvenn skæri og getur unnið til fernra verðlauna en kaupir maður þá ekki eins tuttugu og tvenn skæri og vinnur til þrjátíu og fernra verðlauna? Hljómar asnalega en ætti samt að vera rétt. Fólk ruglar mikið með þetta og sá ég á fyrrnefndu mbl.is fyrirsögnina: Maður dæmdur fyrir tvennar árásir. Hálftíma seinna var svo búið að breyta því réttilega í tvær árásir. Flottast fannst mér þó þegar stúlkan í þættinum Prófíl á Popptíví kynnti að verðlaun fyrir e-n leik væru tveir skautar! Soldið hallærislegt að gefa einn skauta, er það ekki?

6.7.04

Kaffi

Orð vikunnar hjá Orðabók Háskólans er kaffi. Ég er að spá í að byrja að drekka kaffi aftur, a.m.k. í vinnunni þar sem kaffivélin malar afar ljúffengt kaffi. Ég hef ekki getað drukkið kaffi síðan í menntaskóla en þá held ég því fram að ég hafi drukkið yfir mig af vondu kaffi á Café au lait. Verstir voru föstudagarnir þegar jafnvel var skrópað í síðasta tíma til að fá sæti á kaffihúsinu, um hálftvö. Þá pantaði maður gjarnan langloku og Pepsi og svo kaffi sem maður fékk fría áfyllingu á það sem eftir var dags. Um klukkan fimm var svo haldið á síðdegistónleika í Hinu húsinu þar sem maður skalf eftir allt koffínið við rokkmúsík. Já, þeir gömlu, góðu dagar...

5.7.04

Einn og hálfur

Einn og hálfur tími úr Grafarvogi í Vesturbæinn. Þrjú korter úr Laufengi í Spöngina (á að taka 2 mínútur). Svo frétti ég að hin leiðin hefði sennilegast verið fljótlegri. Grrr. En svo sannarlega þess virði. Tónleikarnir voru frábærir og kallarnir langt frá því að vera útbrunnir eftir 22 ár í bransanum. Enda komnir með ansi góða reynslu í þessu tónleikastússi líka. siggimus á reyndar ágætis lýsingu á spjalli söngvarans á milli laga, kannski eru þeir orðnir soldið meyrir - ég veit ekki. Lögin sem þeir tóku voru líka snilld og ekki of mikið af nýrri lögum eins og ég óttaðist. Gaman að sjá hvað Egilshöllin virkaði vel fyrir svona stórtónleika. Sviðið var 2,40 á hæð, á meðan sviðið í Laugardalshöllinni er sennilega meter lægra, þannig að maður sá alltaf eitthvað - mjög gott fyrir lágvaxið fólk! Eina klúðrið var að hvergi var auglýst að ekki mætti koma með töskur inn í Höllina þannig að skellt var upp töskugeymslu í einum gámi fyrir utan og fyrir 200 kr. gastu geymst töskuna þar og reynt svo að ná í hana eftir tónleikana ásamt hinum nokkur þúsundunum sem ætluðu sér það sama! Sem betur fer var Svala svo sniðug að hlaupa með okkar dót alla leið upp í bíl þannig að við komumst beint í bílinn eftir tónleikana.

Niðurstaða: Einir allra bestu tónleikar sem ég hef farið á!

En heldur Lars virkilega að við lítum upp til Dana???

4.7.04

Upphitun

Þá er það upphitun fyrir tónleikana í kvöld. Ég sit við tölvuna með Metallicu í eyrunum og æfi hálsinn fyrir flösuþeytingar og svitaslettur. Einna hrifnust er ég af fyrstu plötum sveitarinnar, þá helst Master of Puppets sem ég hef einna mest hlustað á og svo And Justice for All, Kill´Em All og Ride the Lightning. Svo er það auðvitað svarta platan sem sló í gegn á sínum tíma. Ég hef ekki hlustað á það sem á eftir kom og hef ekki verið hrifin af því litla sem ég hef heyrt. Reyndar er mikill kraftur í nýjustu plötunni þeirra en ég þyrfti að renna henni í gegn í dag svo ég þekki nú fleiri lög í kvöld. Hlakka líka til að sjá Mínus spila í kvöld, hef ekki séð þá síðan þeir gáfu út sína fyrstu plötu held ég. Gaman gaman...

2.7.04

Stóra majonesmálið...

Ha ha ha!

Föstudagur

Strax aftur kominn föstudagur og enn ein helgin framundan. Ekki það að ég kvarti yfir því en það er bara allt í einu kominn júlí og ég ekkert farin að gera af viti! Einhverra hluta vegna er þetta alltaf svona hvort sem er um sumar eða vetur. Hver kannast ekki við þá tilfinningu að önnin í skólanum sé allt í einu hálfnuð og maður ekkert farinn að læra? Ég lendi a.m.k. mjög oft í þessu en sem betur fer hefur mér tekist að klára alltaf á síðustu stundu. Það er kannski bara málið, ég vinn best á síðustu stundu og klára ekkert hlutina fyrr en þá en þeir virðast samt alltaf smella saman á tilsettum tíma. Þá er verkefnið kannski búið að lúra í undirmeðvitundinni í langan tíma og þegar maður sest niður við að skrifa þá kemur alltaf eitthvað. Svo er það nú bara misgott eftir því hvernig liggur á manni... Annars góð helgi framundan og kannski gerast einhverjir hlutir í kollinum á manni á meðan.

1.7.04

Bótfolti

Eins og ég er nú búin að fylgjast nokkuð samviskusamlega með EM í fótbolta þá missi ég af aðalleikjunum, leiknum í kvöld og sjálfum úrslitaleiknum! Ég sá leikinn í gær og skildi satt að segja ekki alveg þetta með hvað Portúgalarnir eiga að vera sætir - hvað er málið með hárbönd í fótbolta? Bæði Beckham og Zidane snoðuðu sig fyrir keppnina og það hefðu fleiri mátt gera! Hins vegar var svosum allt í lagi að sjá Ronaldo fagna marki sínu með því að fara úr að ofan, hann er samt svo ungur að það var nú ekki stingandi strá á honum! Í kvöld var ég búin að lofa Þórdísi frænku að bjóða henni í bíó og þar sem ég er búin að svíkja það tvo daga í vikunni þýðir ekkert að svíkjast um núna. Ætlunin er að fara á Mean Girls og fær sú mynd raunar ágætis dóma þannig að það verður gaman. Á sunnudaginn fer ég svo á Metallicu og þori ég ekki að treysta á að fara strax eftir leik, það dettur örugglega fleirum í hug að gera það - kannski nokkur þúsund manns! Kannski verður leikurinn á risaskjá í Egilshöll?