22.4.06

Það er komið sumar... dúbídúbídú

Gleðilegt sumar! Já, sumarið er gengið í garð við fengum íbúðina afhenta á sumardaginn fyrsta! Jibbí! Við fengum lyklana sem sagt á fimmtudagskvöld og fengum smásjokk... ekkert slæmt samt. Það var bara svo skrýtið að sjá íbúðina svona tóma og þá sást vel hversu illa máluð hún er af fyrri eigendum. Það var því drifið í því í gær að byrja að mála pleisið og vorum við þar í allan gærdag að sparsla, pússa, teipa og mála. Þetta verður allt annað þegar er búið að mála þetta og hlökkum við bara mikið til að flytja, enda var ég vöknuð hálfníu í morgun til að hugsa um allt sem á eftir að gera og kaupa! Fólk er svo velkomið að kíkja í heimsókn næstu daga en við flytjum síðan alfarið eftir helgi þar sem við þurfum að skila Eggertsgötunni fyrir mánaðamót.

20.4.06

Picture(3.jpg

Ahh, gódur sirkusinn á Bjórnum... Nei, bjórinn á Sirkus!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

17.4.06

Picture(3.jpg

Fullt af Scrabble um páskana
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

15.4.06

Picture(3.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

14.4.06

Picture(3.jpg

Brádnaudsynleg bók í föstudags langa bíltúrinn!
Myndina sendi ég
Powered by Hexia

13.4.06

Picture(3.jpg

Myndina sendi ég
Powered by Hexia

11.4.06

Páskavikan

Páskavikan runnin upp og heljarinnar frí framundan. Að sjálfsögðu verður páskunum sjálfum eytt í sveitinni að venju og er framundan mikið át og spilirí og gaman! Það er meira að segja búið að gera dagskrá fyrir páskana á Valdastöðum svo að ekkert gleymist - Scrabblið, félagsvistin, spurningakeppni fjölmiðlanna á Rás 2 og föstudags langi bíltúrinn svo eitthvað sé nefnt:)

Um síðustu helgi fórum við í sumarbústað í Húsafelli, svona rétt til að lengja páskafríið. Komum meira að segja ekki heim fyrr en í gær þar sem við vorum ekki að vinna. Það er því rétt að maður stoppi í tvo daga í bænum áður en næsta sveitaferð brestur á.

Dagana notar maður svo annars í að pakka niður bókum og öðru dóti því vonandi fáum við afhent helgina eftir páska. Að vísu er ég í smávinnu núna við orðasafnið sem ég vann í fyrrasumar en annað er ekki frágengið enn. Það bjargast vonandi!

Hafið það gott um páskana börnin góð!



Gleðilega páska!

31.3.06

Bakkabúinn

Við erum loksins búin að skrifa undir kaupsamning! Jibbí! Við fáum afhent 22. apríl, vonandi allavega, og höfum þá viku til að mála, þrífa og flytja. Vá hvað ég hlakka til! Hér eru nokkrar myndir af slotinu:


Gaman að grilla þarna!
Borðstofan/Stofan. Þarna er gengið út á grillsvalirnar...


Þarna ætlar Jói að elda:)
Eldhúsið/Borðstofan.


Bjart og fínt.
Stofan.


Gengið inn í íbúð hægra megin.
Gangurinn, þarna sést í inngang inn í herbergin og baðherbergi.


Svalirnar snúa inn í lengjuna.
Þetta er svo húsið, okkar íbúð merkt með rauðu.

Já, svona lítur það út. Þá getum við farið að bjóða fólki í almennilegt grill og innflutningspartí og, tja, bakkelsi... Nóg pláss og allt!

27.3.06

Áfram Wham!

Ég vissi alltaf að Wham væru betri...

21.3.06

In the ghetto...

Það er orðið ansi langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna en ég hef einhvern veginn ekki nennt að standa í því, sérstaklega þar sem allt er búið að vera í óvissu með íbúðamál, vinnumál og fleira skemmtilegt. Nú er þetta hins vegar allt að skýrast. Við erum sennilega að fara að kaupa okkur íbúð í gettóinu. Já, nú ætlum við að flytja í Breiðholtið, nánar tiltekið í Grýtubakkann. Þetta varð niðurstaðan eftir mikla leit og fáránlega hátt fasteignaverð alls staðar. Íbúðin er 3 herbergja og mjög rúmgóð og björt. Að vísu erum við ekki búin að skrifa undir neitt en málin eru í vinnslu í bankanum og svoleiðis og vonandi verður gengið frá þessu í þessari eða næstu viku. Jibbí!

Annars eru vinnumálin óljós enn, ég fékk að vísu smáverkefni tímabundið en er að bíða eftir svörum með annað. Það skýrist líka vonandi allt saman á næstunni. Nóg að gera sem sagt þessa dagana! Fylgist spennt með...

11.3.06

Lördag

Þetta er mjög, mjög illa skrifuð frétt. Ég skil alveg að sá sem skrifar hafi verið þreyttur fyrir klukkan sjö í morgun - en samt! Nöfn foreldra hennar eru ekki einu sinni beygð!

Ég dreif mig í bíó í vikunni sem þykir teljast til tíðinda þessa dagana. Fór á Walk the Line sem er alveg frábær. Tónlistin auðvitað mjög skemmtileg og alveg nauðsynlegt að heyra hana í bíó. Enda er ég búin að vera með Cash á heilanum og í græjunum síðan og kom sér vel að eiga alla þessa diska með honum sem ég fékk í útskriftargjöf! Saga hans og June er líka svo falleg og leikararnir ná að gera þetta allt mjög vel. Og svo syngja leikararnir sjálfir í myndinni - sem er ótrúlegt en satt. Mæli sem sagt með myndinni alveg hiklaust.

Sá líka The Constant Gardener á dögunum og mæli með henni. Og það ekki bara af því að Ralph Fiennes foli leikur í henni heldur er myndin alveg svakalega góð.

Talandi um bíómyndir, ég sá eitthvað af Bafta verðlaununum um daginn. Þar var Rachel Weisz tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki (en Reese Witherspoon vann) en svo vann hún Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki... Skil þetta ekki alveg.


Annars er algjör rólegheitahelgi hér á bæ. Ekkert planað nema vídeó í kvöld bara. Það er reyndar mjög fínt þar sem síðustu tvær helgar hafa farið í veislur og læti.

8.3.06

Ekki vitlaust!

You scored as Linguistics. You should be a Linguistics major!

Linguistics

92%

English

75%

Philosophy

75%

Psychology

67%

Mathematics

67%

Dance

58%

Engineering

58%

Sociology

50%

Theater

50%

Journalism

42%

Anthropology

42%

Biology

33%

Art

25%

Chemistry

17%

What is your Perfect Major? (PLEASE RATE ME!!<3)
created with QuizFarm.com

6.3.06

Á forsíðu!

Jahérna, ég var barasta sett á forsíðuna líka!

3.3.06

Á barmi heimsfrægðar?

Ég lenti í mjög skrýtnu í dag. Var búin að koma mér fyrir til að horfa á bíómynd (enn ekki farin að vinna...) þegar síminn hringir. Þá er það stúlka frá Fréttablaðinu sem segist vilja taka viðtal við mig fyrir dálkinn „tímamót“ þar sem ég hafi verið að útskrifast úr Háskóla Íslands um síðustu helgi. Ég verð auðvitað mjög hissa og spyr hvort að það sé nú ekki aðallega eitthvað frægt fólk þarna (t.d. átti Þorvaldur Bjarni fertugsafmæli í dag og var þarna). Þá segir hún að það sé ekkert gaman að tala alltaf við sama fólkið og fannst forvitnilegt að ég hefði verið að útskrifast ein úr einhverju sem héti tungutækni. Ég lét þá bara til leiðast og tók stúlkan við mig stutt viðtal sem birtist í Fréttablaðinu á mánudaginn skilst mér! Ljósmyndari frá þeim kom svo og tók nokkrar myndir af mér fyrir framan Háskólann... mér leið pínu svona eins og í „America´s Next Top Model“, með vindinn í hárið og svona - nema að ég var auðvitað ekki á bikiní. Allir að skoða svo Fréttablaðið á mánudaginn:)

1.3.06

Miðvikudagur

Þá er maður rétt að ná sér eftir helgina, það varð hálfgert spennufall eftir laugardaginn. Dagurinn heppnaðist þó alveg frábærlega, við systur héldum afskaplega vel heppnað hanastél, þótt ég segi sjálf frá, og fórum svo út að borða á eftir hjá Sigga Hall á Óðinsvéum. Þar var Food and Fun í gangi og alveg svakalega góður matur. Mest á óvart kom þorskurinn sem ég hélt að hlyti að vera vondur en reyndist síðan það besta á matseðlinum!

Nú er ég að rembast við að útbúa stuttan fyrirlestur um verkefnið mitt sem ég á að halda í fyrramálið. Ég er hreint alveg dottin úr stuði til að skrifa nokkuð eða segja um verkefnið mitt. Kosturinn við þetta er að fyrirlesturinn er stuttur þannig að þetta verður ekkert stórmál. Samt erfitt að vera að gera eitthvað... úff, þarf að leggja mig!

25.2.06

Útskrift

Á þessum undurfagra degi útskrifast ég í annað sinn á ævinni úr Háskóla Íslands, nú sem M.A. í tungutækni. Að vísu ætla ég ekki að vera viðstödd útskriftina, mér finnst nóg að gera það einu sinni á ævinni. Dagurinn fer í staðinn í undirbúning fyrir partý og gleði en þar sem stóra systir er líka að útskrifast ætlum við að halda ærlega upp á það saman! Gaman! Ekki skrýtið að ég hafi vaknað hálfníu í morgun...

21.2.06

Nörd

Þetta er skemmtileg síða fyrir stjörnunörda eins og mig. Ég hef endalaust gaman af því að góna upp í stjörnubjartan himinn og skoða stjörnur og stjörnumerki. Þegar ég var ung stúlka í Kjósinni fór ég gjarnan út með stjörnukort, vasaljós og Almanak hins íslenska þjóðvinafélags þar sem var að finna upplýsingar um stöðu reikistjarna á himni. Svo sat ég og rýndi til skiptis í kortin og upp til himins. Þá var ég staðráðin í að verða stjörnufræðingur þegar ég yrði stór en það breyttist snarlega þegar ég sá að maður þyrfti að hafa mikla kunnáttu í stærðfræði og eðlisfræði og að nauðsynlegur grunnur væri eðlisfræðideild I í MR. Þá ákvað ég að fara á fornmáladeild og læra málvísindi í staðinn. Já, svona getur maður nú verið mikill nörd.


Geimnördar

18.2.06

Laugardagur

Merkilegt hvað ég get sofið á virkum dögum en ekki um helgar. Mér finnst svo erfitt að vakna alla morgna nema laugardaga! Er þetta ellimerki? Kannski er ég svona spennt yfir helgunum. Núna er ég til dæmis að fara í sveitina í 10 ára afmæli hjá Óla Geir og, það sem meira er, 45 ára brúðkaupsafmæli foreldra minna. 45 ár, spáið í það! Það verður því mikið etið eins og venjulega og svo auðvitað fylgst með söngvakeppninni í kvöld. Áfram Silvía Nótt!

15.2.06

Klukk

Ásdís klukkaði mig víst þannig að hér er það:

Fjórir staðir sem ég hef unnið á:
1. Hvammsvík
2. Ikea
3. Háskóli Íslands
4. Hex

Fjórir staðir sem ég hef búið á:
1. Valdastaðir í Kjós
2. Rue Margueritte, París
3. Sæbraut 3, Seltjarnarnesi
4. Eggertsgata 28, Reykjavík

Fjórir þættir sem ég fíla:
1. Arrested Development
2. Alias
3. Desperate Housewives
4. My Name is Earl
...og Lost og 24 og margt fleira!

Fjórir staðir sem ég hef ferðast til:
1. Lanzarote
2. Sunny Beach, Búlgaríu
3. París
4. Krít

Fjórar vefsíður sem ég skoða daglega:
1. mbl.is
2. bloggið mitt og annarra
3. leikjanet.is
4. b2.is

Fjórar uppáhalds matartegundir:
1. Pasta
2. Kjúklingur
3. Nautakjöt
4. Snakk :(

Fjórir diskar sem ég get ekki verið án:
1. Sufjan Stevens - allt
2. Andrew Bird & The Mysterious Production of Eggs
3. Nick Cave safnið mitt
4. Elliott Smith - XO
...og margt, margt fleira!

Ég veit ekki hver nennir að taka þátt í þessu en ég klukka bara Svölu og Selmu Hrönn:)

14.2.06

Kyssi kyssi

Einstæðir Norðmenn kyssa sjaldan

Bíddu, segir það sig ekki sjálft að það sé líklegra að fólk í sambandi kyssi oftar en þeir sem eru einir? Bara að spá...