1.3.06

Miðvikudagur

Þá er maður rétt að ná sér eftir helgina, það varð hálfgert spennufall eftir laugardaginn. Dagurinn heppnaðist þó alveg frábærlega, við systur héldum afskaplega vel heppnað hanastél, þótt ég segi sjálf frá, og fórum svo út að borða á eftir hjá Sigga Hall á Óðinsvéum. Þar var Food and Fun í gangi og alveg svakalega góður matur. Mest á óvart kom þorskurinn sem ég hélt að hlyti að vera vondur en reyndist síðan það besta á matseðlinum!

Nú er ég að rembast við að útbúa stuttan fyrirlestur um verkefnið mitt sem ég á að halda í fyrramálið. Ég er hreint alveg dottin úr stuði til að skrifa nokkuð eða segja um verkefnið mitt. Kosturinn við þetta er að fyrirlesturinn er stuttur þannig að þetta verður ekkert stórmál. Samt erfitt að vera að gera eitthvað... úff, þarf að leggja mig!

Engin ummæli: