11.4.06

Páskavikan

Páskavikan runnin upp og heljarinnar frí framundan. Að sjálfsögðu verður páskunum sjálfum eytt í sveitinni að venju og er framundan mikið át og spilirí og gaman! Það er meira að segja búið að gera dagskrá fyrir páskana á Valdastöðum svo að ekkert gleymist - Scrabblið, félagsvistin, spurningakeppni fjölmiðlanna á Rás 2 og föstudags langi bíltúrinn svo eitthvað sé nefnt:)

Um síðustu helgi fórum við í sumarbústað í Húsafelli, svona rétt til að lengja páskafríið. Komum meira að segja ekki heim fyrr en í gær þar sem við vorum ekki að vinna. Það er því rétt að maður stoppi í tvo daga í bænum áður en næsta sveitaferð brestur á.

Dagana notar maður svo annars í að pakka niður bókum og öðru dóti því vonandi fáum við afhent helgina eftir páska. Að vísu er ég í smávinnu núna við orðasafnið sem ég vann í fyrrasumar en annað er ekki frágengið enn. Það bjargast vonandi!

Hafið það gott um páskana börnin góð!



Gleðilega páska!

Engin ummæli: