3.3.06
Á barmi heimsfrægðar?
Ég lenti í mjög skrýtnu í dag. Var búin að koma mér fyrir til að horfa á bíómynd (enn ekki farin að vinna...) þegar síminn hringir. Þá er það stúlka frá Fréttablaðinu sem segist vilja taka viðtal við mig fyrir dálkinn tímamót“ þar sem ég hafi verið að útskrifast úr Háskóla Íslands um síðustu helgi. Ég verð auðvitað mjög hissa og spyr hvort að það sé nú ekki aðallega eitthvað frægt fólk þarna (t.d. átti Þorvaldur Bjarni fertugsafmæli í dag og var þarna). Þá segir hún að það sé ekkert gaman að tala alltaf við sama fólkið og fannst forvitnilegt að ég hefði verið að útskrifast ein úr einhverju sem héti tungutækni. Ég lét þá bara til leiðast og tók stúlkan við mig stutt viðtal sem birtist í Fréttablaðinu á mánudaginn skilst mér! Ljósmyndari frá þeim kom svo og tók nokkrar myndir af mér fyrir framan Háskólann... mér leið pínu svona eins og í America´s Next Top Model, með vindinn í hárið og svona - nema að ég var auðvitað ekki á bikiní. Allir að skoða svo Fréttablaðið á mánudaginn:)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli