21.2.06

Nörd

Þetta er skemmtileg síða fyrir stjörnunörda eins og mig. Ég hef endalaust gaman af því að góna upp í stjörnubjartan himinn og skoða stjörnur og stjörnumerki. Þegar ég var ung stúlka í Kjósinni fór ég gjarnan út með stjörnukort, vasaljós og Almanak hins íslenska þjóðvinafélags þar sem var að finna upplýsingar um stöðu reikistjarna á himni. Svo sat ég og rýndi til skiptis í kortin og upp til himins. Þá var ég staðráðin í að verða stjörnufræðingur þegar ég yrði stór en það breyttist snarlega þegar ég sá að maður þyrfti að hafa mikla kunnáttu í stærðfræði og eðlisfræði og að nauðsynlegur grunnur væri eðlisfræðideild I í MR. Þá ákvað ég að fara á fornmáladeild og læra málvísindi í staðinn. Já, svona getur maður nú verið mikill nörd.


Geimnördar

Engin ummæli: