11.3.06

Lördag

Þetta er mjög, mjög illa skrifuð frétt. Ég skil alveg að sá sem skrifar hafi verið þreyttur fyrir klukkan sjö í morgun - en samt! Nöfn foreldra hennar eru ekki einu sinni beygð!

Ég dreif mig í bíó í vikunni sem þykir teljast til tíðinda þessa dagana. Fór á Walk the Line sem er alveg frábær. Tónlistin auðvitað mjög skemmtileg og alveg nauðsynlegt að heyra hana í bíó. Enda er ég búin að vera með Cash á heilanum og í græjunum síðan og kom sér vel að eiga alla þessa diska með honum sem ég fékk í útskriftargjöf! Saga hans og June er líka svo falleg og leikararnir ná að gera þetta allt mjög vel. Og svo syngja leikararnir sjálfir í myndinni - sem er ótrúlegt en satt. Mæli sem sagt með myndinni alveg hiklaust.

Sá líka The Constant Gardener á dögunum og mæli með henni. Og það ekki bara af því að Ralph Fiennes foli leikur í henni heldur er myndin alveg svakalega góð.

Talandi um bíómyndir, ég sá eitthvað af Bafta verðlaununum um daginn. Þar var Rachel Weisz tilnefnd sem besta leikkona í aðalhlutverki (en Reese Witherspoon vann) en svo vann hún Óskarinn fyrir besta leik í aukahlutverki... Skil þetta ekki alveg.


Annars er algjör rólegheitahelgi hér á bæ. Ekkert planað nema vídeó í kvöld bara. Það er reyndar mjög fínt þar sem síðustu tvær helgar hafa farið í veislur og læti.

Engin ummæli: