21.3.06

In the ghetto...

Það er orðið ansi langt síðan ég hef skrifað eitthvað hérna en ég hef einhvern veginn ekki nennt að standa í því, sérstaklega þar sem allt er búið að vera í óvissu með íbúðamál, vinnumál og fleira skemmtilegt. Nú er þetta hins vegar allt að skýrast. Við erum sennilega að fara að kaupa okkur íbúð í gettóinu. Já, nú ætlum við að flytja í Breiðholtið, nánar tiltekið í Grýtubakkann. Þetta varð niðurstaðan eftir mikla leit og fáránlega hátt fasteignaverð alls staðar. Íbúðin er 3 herbergja og mjög rúmgóð og björt. Að vísu erum við ekki búin að skrifa undir neitt en málin eru í vinnslu í bankanum og svoleiðis og vonandi verður gengið frá þessu í þessari eða næstu viku. Jibbí!

Annars eru vinnumálin óljós enn, ég fékk að vísu smáverkefni tímabundið en er að bíða eftir svörum með annað. Það skýrist líka vonandi allt saman á næstunni. Nóg að gera sem sagt þessa dagana! Fylgist spennt með...

Engin ummæli: