12.2.07
Kolur
Obbosí! Haldiði að Kola litla sé ekki með pung! Litla kisan er sko engin læða heldur hress fress með loðinn pung. Já, við héldum að þetta væri læða eins og okkur var sagt þar til í gærkvöldi að ég var að klóra honum á maganum. Þá blasti dýrðin við! Það verður því að breyta nafninu og er ekki hægt að skíra hann í höfuðið á Selmu. Kolur skal hann heita héðan í frá.
11.2.07
Kola
Já, eins og sjá má á myndunum hér að neðan þá hefur orðið fjölgun á heimilinu. Kola flutti til okkar í gær, 10. febrúar, á 9 ára afmælisdegi Heiðu Maríu frænku. Þetta byrjaði nú allt í tilhugalífi okkar Jóa sem er mikill kattavinur og hefur átt kisu síðan hann var strákur. Ég, sveitastelpan, er að sjálfsögðu ekki vön því að hafa dýr inni á heimilinu, dýrin eiga bara að vera úti í fjósi! En þegar maður er ungur og ástfanginn þá lofar maður öllu fögru og auðvitað myndum við fá okkur kött þegar við værum orðin stór og farin að búa. Ég slapp með skrekkinn á stúdentagörðunum þar sem kattahald er stranglega bannað en þegar við fluttum í okkar eigið húsnæði varð ekki lengur hægt að fresta þessu. Ég hélt ég væri sloppin fyrst við fluttum í fjölbýli en Jói kættist þegar hann sá alla kettina í nágrenninu og hjá nágranna okkar í stigaganginum. Þá var bara að ganga í að leita að kisu. Við fórum í gær og keyptum kassa, kattasand og kattamat og allt sem þarf að eiga þegar ný kisa flytur inn á heimilið og skoðuðum svo smáauglýsingarnar sem eru uppfullar af gefins kisum. Þar fundum við eina sem beið eftir okkur í Vesturbænum, rúmlega 12 vikna gamla. Hún titraði og skalf á leiðinni í úthverfi borgarinnar, enda aldrei farið út úr húsi og hvað þá í bíl. Allt gekk þó vel í fyrstu, hún skoðaði nýju heimkynnin af miklum áhuga og var síðan svo þreytt í gærkvöldi að hún steinsvaf hjá okkur í sófanum. Nóttin leið stórslysalaust en hún var heldur smeyk í morgun eftir allar hroturnar í nótt og ætluðum við aldrei að finna hana en loksins gægðist hún fram þar sem hún hafði sofið bak við tölvuskjáinn... Við skírðum hana fullu nafni Kola Selma í höfuðið á gæludýrinu okkar sem var hérna í haust en ætlum að kalla hana Kolu. Og það fyndna er að hún er búin að taka ástfóstri við herberginu hennar Selmu og hvílir sig þar þegar hún er feimin við okkur. Þetta tekur eflaust einhverja daga fyrir hana að venjast okkur en framundan er spennandi líf hjá okkur sem kisuforeldrar og eflaust verð ég hrifnari en mig hefði grunað af kisu litlu.
10.2.07
28.1.07
Sunnudagur til sigurs
Nei, þessi sunnudagur virðist ekki ætla að vera til sigurs hjá íslenska handboltalandsliðinu, Þjóðverjar eru að valta yfir þá í þessum skrifuðu orðum...
En hvað um það, vegna fjölmargra áskorana (!) ákvað ég að hætta ekkert að skrifa hérna, það eru allavega fjórir sem lesa þetta svo að það er bara fínt:) Vikan sem leið var hin rólegasta fyrir utan það að ég hefði getað lent í geðsjúklingi á vörubíl sl. fimmtudagskvöld. Við Selma vorum á leiðinni heim á fimmtudagskvöldið þegar við komum að fullt af löggubílum á gatnamótunum við Vífilstaðaveg, blikkandi ljós á fullu en ekkert umferðarslys svo að við skildum ekkert í þessu en alveg að drepast úr forvitni. Morguninn eftir komst ég hins vegar að því að þarna var verið að tæma gatnamótin ef trukkurinn kæmi æðandi þangað á 100 km hraða... eins gott að við komumst heilar heim segi ég nú bara!
Helgin var hin rólegasta líka. Byrjaði með Trivial móti í vinnunni á föstudag og svo kom Þórdís frænka í heimsókn frá laugardegi til sunnudags og var ýmislegt skemmtilegt gert, t.d. borðað á Jómfrúnni, farið í Kolaportið, horft á handbolta, farið í bíó og í Ikea. Allavega er maður í góðu formi í dag en ekki ryðgaður eins og stundum áður!
Já, best að kaupa miða á Lisu Ekdahl á meðan ég man...

23.1.07
Jæja...
Gleðilegt ár! (Kominn tími á það...) Ofsalega er búið að vera lítið um að vera hérna! Aðalástæðan fyrir því er auðvitað sú að ég byrjaði í nýrri vinnu 2. janúar og hef því ekki haft tíma til að hanga mikið í tölvunni að blogga. Ég fer nefnilega ekki svo mikið í tölvuna þegar ég er heima nema einstaka sinnum, eins og núna þegar ekkert er í sjónvarpinu. Vinnan er annars stórfín, nóg að læra og nóg að gera, fólkið skemmtilegt og allt lofar góðu.
Annars er bara búið að vera fjör í janúar fyrir utan vinnuna, nú síðast þorrablót í sveitinni sl. laugardag og er ég enn að jafna mig eftir það... Það verða sko rólegheit á næstunni! Tónleikunum með Pétri, Birni og Jóni sem áttu að vera næstu helgi var frestað fram í mars svo að næsta helgi verður róleg - sem betur fer. Ég verð með frænkur í heimsókn og stefni á bíó og fleira skemmtilegt.
Þarna sjáiði, ekkert verið skrifað í mánuð og ekkert að skrifa um... kannski kominn tími á að fara að hætta þessu bara!

29.12.06
27.12.06
Jóla jóla
Gleðileg jól og takk fyrir pakka og kort þið sem þetta lesið:)
Maður er búinn að hafa það alltof gott um jólin eins og venjulega. Ég fór uppeftir strax á Þorláksmessu og fór strax í Scrabble og var mikið spilað af því þessa daga. Ég lagði ekki í skötuna heldur eldaði skötupasta með engri skötu handa mér og krökkunum. Þar með hófst átveislan mikla sem lauk ekki fyrr en í gær! Önd og gæs á aðfangadag, hangikjöt í hádeginu á jóladag og nautalund um kvöldið, fyrir utan allar smákökurnar og nammið. Úff! Ég kom í bæinn í gær og í vinnuna í dag. Síðustu dagarnir hér á Orðabókinni og svo eitthvað allt annað í næstu viku! Allt að gerast...

21.12.06
3 dagar til jóla!
Stysti dagur ársins í dag, kaldur og hvass. Er maður ekki enn syfjaðri þennan dag en aðra? Mér finnst ég allavega alltaf vera sybbin...
Aðeins þrír dagar til jóla og ég búin að kaupa allar gjafir og pakka þeim öllum inn nema einni! Enn er allt á hvolfi heima en kvöldið verður notað í að gera huggulegt. Fyrsta jólatréð okkar fer upp í kvöld og kannski aðeins lagað til um leið. Svo er jólagleði annað kvöld og getur verið að ég fari bara í sveitina á Þorláksmessu í ár til að nota ferðina sem er þá. Ég hef ekki verið uppfrá á Þorláksmessu síðan í menntaskóla held ég þannig að það verður kósí. Vonandi fæ ég bara pylsur í matinn samt, ég meika ekki skötuna. Mmm, hlakka til:)

15.12.06
Ég þarf greinilega að drífa mig þangað...
| You Belong in Barcelona |
![]() When it comes to Europe, you don't want to decide between culture and fun. You want art by day and a big party by night. Barcelona is ideal for you. You can check out some Picasso, eat some tapas, take a siesta, and then dance all night! |
9 dagar til jóla!
Leiðinda Gmail virkar ekki hjá mér í dag, einmitt þegar ég þarf að nota póst þaðan til að geta unnið áfram! Alveg dæmigert...
Tíminn líður og aðeins níu dagar til jóla. Helginni verður vonandi eytt í eitthvað gáfulegt eins og að skrifa jólakort, taka smá til, kaupa nokkrar jólagjafir og vonandi horfa á It´s a Wonderful Life, uppáhalds jólamyndina mína, en ég keypti hana einmitt á DVD úti í London um daginn. Kannski að maður horfi líka á Return of the King og klári þá þrennu. Og Lost þættina sem ég var að fá úr nýju seríunni... Greinilegt hvað ég verð að gera um helgina.

11.12.06
13 dagar til jóla!
Það styttist aldeilis í jólin og því var mjög við hæfi að taka eina jólasveitahelgi um helgina. Ég dreif mig uppeftir á föstudag og var helginni eytt í Scrabble (en ekki hvað?), laufabrauðsgerð, lestur, Trivial, sjötugsafmæli, rafmagnsleysi og kertaljós. Rafmagnið fór sem sagt vegna veðurs á laugardagskvöldið eftir matinn og var því ekkert annað að gera en að spila við kertaljós. Langt síðan maður hefur lent í svona svartamyrkri! Síðan var svo vont veður að það þurfti að keyra börn og fatlafól á milli húsa svo að við myndum nú ekki fjúka... ævintýralegt það. Jólaskapið helltist yfir mann þrátt fyrir vatnsveðrið og hef ég verið að söngla jólalög síðan.
Ef fólk hefur áhuga á öðruvísi jólalögum þá ef hægt að hlusta á allar jólaplöturnar hans Sufjans Stevens hér. Þetta kemur mér allavega í jólaskapið!

5.12.06
Hjúkk...
Ég var farin að hafa áhyggjur!
Ég er einmitt búin að horfa aftur á tvær af þremur Hringadróttinssögum í lengri útgáfu og þvílík snilld. Ég er því mjög spennt að sjá Hobbitann í gerð sama leikstjóra.
Annars er að verða ansi jóló út um allt. Við þurfum einmitt að fara að kaupa eitthvað jóló á svalirnar hjá okkur og svona. Þegar maður er kominn í svona stóra íbúð þá týnist alveg þetta litla jóladót sem við áttum! Þá er bara að bæta við...

30.11.06
Domm
Domm dí domm, ég er hálfdomm. Sísyfjuð í skammdeginu, gæti sofið allan daginn eða allavega legið uppi í rúmi. Hef ekki frá neinu að segja. Vildi bara hafa lífsmark á síðunni. Lofa að ég skrifa eitthvað skemmtilegt næst...
21.11.06
Þriðjudagur
Ég þoli ekki svona mikinn snjó! Ég get ekki labbað í honum, það er leiðinlegt að keyra í honum og það er einfaldlega alltof mikið af honum! En það þýðir víst lítið að tuða yfir því, ekki fer hann við það...
Síðasta helgi var virkilega skemmtileg og tónleikarnir á föstudagskvöldið einfaldlega stórkostlegir. Vá. Frábært að fara á svona góða tónleika þar sem maður fær gæsahúð og tár í augun! Eftir tónleikana fór ég í sveitina þar sem var tekin æfing í skrafli fyrir jólin. Auðvitað burstaði ég annað spilið (hehe) svo að ég kem sterk inn í scrabble tímabilið í ár! Svo var afmæliskaka á laugardeginum enda áttu nöfnurnar Þórdís og Þórdís á Valdastöðum afmæli í gær. Svo var meira afmæli á laugardagskvöldið en Svala og Jenni héldu upp á stórafmælin sín. Flott veisla og rosa gaman - takk fyrir það!
Svo var maður bara fastur í snjóskafli heima á sunnudaginn. Sem betur fer vorum við nú ekki föst í bænum um nóttina eins og sumir voru víst. Dagurinn fór í að horfa á Föruneyti hringsins, extra langa þriggja og hálfs tíma útgáfu! Ekki leiðinlegt það... Ég bíð spennt eftir að horfa á hinar tvær en kassann keypti í einmitt í London.

18.11.06
17.11.06
Súfjan sæti
Í dag er ég í mjög góðu skapi þrátt fyrir kuldabola úti. Í kvöld er t.d. hinn undurfagri Sufjan Stevens að fara að spila fyrir mig undurfagra tónlist í Fríkirkjunni og ég get ekki beðið! Ég sit í vinnunni og hlusta á tónlistina hans og hlakka bara til. Vonandi verð ég ekki fyrir vonbrigðum með tónleikana en væntingarnar eru miklar.
London var annars skemmtileg að venju. Ég var að vísu búin að gleyma því hvað stórborgir krefjast mikillar göngu og voru fæturnir mínir því ansi lúnir eftir ferðina. Þó maður ætli sér alls ekki að skoða allt og gera allt þá er alltaf meira labb en maður ætlar sér. Það var því ágætt að setjast reglulega inn á pöbba til að hvíla sig! Ég ætlaði að kaupa mér fullt af fötum úti en varð fyrir vonbrigðum með búðirnar. Ég fann mér jólapils og götuskó en keypti annars mest í Virgin Megastore og HMV - en ekki hvar? Geisladiskar og DVD, það er langskemmtilegast að kaupa svoleiðis! Svo fórum við í leikhús að sjá The Producers sem var mjög skemmtilegt. Duldið langt en mjög fyndið. Svo fórum við líka í dýragarðinn sem var bara fjör. Stutt ferð en skemmtileg í heildina.
Nú þarf ég bara að fara að uppfæra óskalistann hérna til hliðar svo að fólk viti hvað mig vantar í jólagjöf...

8.11.06
Valdis O.
Hahahahaha! Ég á nafna í útlöndum! Næstum því alnafna meiraðsegja.
Nú líður mér eins og Lýð Oddssyni...
Nú líður mér eins og Lýð Oddssyni...
London beibí
Jibbí, ég er að fara til London á morgun! Við skötuhjúin ætlum að skella okkur í helgarferð til stórborgarinnar þar sem við ætlum að njóta lífsins, kannski kíkja í búðir, drekka fullt af bjór, fara út að borða og í leikhús. Svo eitthvað sé nefnt. Vonandi nær maður að gera eitthvað af þessu fram á sunnudag en þá komum við aftur. Vííí!
Mér brá aldeilis í brún í gærkvöldi þegar ég leit út um gluggann en þá var allt fullt af slökkviliðsbílum á bílastæðinu okkar. Það hafði þá kviknað í húsinu við hliðina á okkur. Að vísu urðum við ekki vör við þetta fyrr en búið var að slökkva eldinn en fréttum að þetta hefði verið mikill eldur. Óhuggulegir þessir eldsvoðar...
Ég er núna búin að ætla á The Queen í bíó í nokkrar vikur þar sem ég fékk boðsmiða á hana en er ekki enn farin að fara. Svo fer ég út á morgun og það verður örugglega hætt að sýna hana í næstu viku. Meira hvað maður getur verið latur. Ætli maður gefi ekki leigjandanum bara miðann ef hún nennir...
London beibí á morgun! Jibbí...

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)