11.2.07

Kola

Já, eins og sjá má á myndunum hér að neðan þá hefur orðið fjölgun á heimilinu. Kola flutti til okkar í gær, 10. febrúar, á 9 ára afmælisdegi Heiðu Maríu frænku. Þetta byrjaði nú allt í tilhugalífi okkar Jóa sem er mikill kattavinur og hefur átt kisu síðan hann var strákur. Ég, sveitastelpan, er að sjálfsögðu ekki vön því að hafa dýr inni á heimilinu, dýrin eiga bara að vera úti í fjósi! En þegar maður er ungur og ástfanginn þá lofar maður öllu fögru og auðvitað myndum við fá okkur kött þegar við værum orðin stór og farin að búa. Ég slapp með skrekkinn á stúdentagörðunum þar sem kattahald er stranglega bannað en þegar við fluttum í okkar eigið húsnæði varð ekki lengur hægt að fresta þessu. Ég hélt ég væri sloppin fyrst við fluttum í fjölbýli en Jói kættist þegar hann sá alla kettina í nágrenninu og hjá nágranna okkar í stigaganginum. Þá var bara að ganga í að leita að kisu. Við fórum í gær og keyptum kassa, kattasand og kattamat og allt sem þarf að eiga þegar ný kisa flytur inn á heimilið og skoðuðum svo smáauglýsingarnar sem eru uppfullar af gefins kisum. Þar fundum við eina sem beið eftir okkur í Vesturbænum, rúmlega 12 vikna gamla. Hún titraði og skalf á leiðinni í úthverfi borgarinnar, enda aldrei farið út úr húsi og hvað þá í bíl. Allt gekk þó vel í fyrstu, hún skoðaði nýju heimkynnin af miklum áhuga og var síðan svo þreytt í gærkvöldi að hún steinsvaf hjá okkur í sófanum. Nóttin leið stórslysalaust en hún var heldur smeyk í morgun eftir allar hroturnar í nótt og ætluðum við aldrei að finna hana en loksins gægðist hún fram þar sem hún hafði sofið bak við tölvuskjáinn... Við skírðum hana fullu nafni Kola Selma í höfuðið á gæludýrinu okkar sem var hérna í haust en ætlum að kalla hana Kolu. Og það fyndna er að hún er búin að taka ástfóstri við herberginu hennar Selmu og hvílir sig þar þegar hún er feimin við okkur. Þetta tekur eflaust einhverja daga fyrir hana að venjast okkur en framundan er spennandi líf hjá okkur sem kisuforeldrar og eflaust verð ég hrifnari en mig hefði grunað af kisu litlu.

Engin ummæli: