17.11.06

Súfjan sæti

Í dag er ég í mjög góðu skapi þrátt fyrir kuldabola úti. Í kvöld er t.d. hinn undurfagri Sufjan Stevens að fara að spila fyrir mig undurfagra tónlist í Fríkirkjunni og ég get ekki beðið! Ég sit í vinnunni og hlusta á tónlistina hans og hlakka bara til. Vonandi verð ég ekki fyrir vonbrigðum með tónleikana en væntingarnar eru miklar.

London var annars skemmtileg að venju. Ég var að vísu búin að gleyma því hvað stórborgir krefjast mikillar göngu og voru fæturnir mínir því ansi lúnir eftir ferðina. Þó maður ætli sér alls ekki að skoða allt og gera allt þá er alltaf meira labb en maður ætlar sér. Það var því ágætt að setjast reglulega inn á pöbba til að hvíla sig! Ég ætlaði að kaupa mér fullt af fötum úti en varð fyrir vonbrigðum með búðirnar. Ég fann mér jólapils og götuskó en keypti annars mest í Virgin Megastore og HMV - en ekki hvar? Geisladiskar og DVD, það er langskemmtilegast að kaupa svoleiðis! Svo fórum við í leikhús að sjá The Producers sem var mjög skemmtilegt. Duldið langt en mjög fyndið. Svo fórum við líka í dýragarðinn sem var bara fjör. Stutt ferð en skemmtileg í heildina.

Nú þarf ég bara að fara að uppfæra óskalistann hérna til hliðar svo að fólk viti hvað mig vantar í jólagjöf...

Engin ummæli: