21.11.06

Þriðjudagur

Ég þoli ekki svona mikinn snjó! Ég get ekki labbað í honum, það er leiðinlegt að keyra í honum og það er einfaldlega alltof mikið af honum! En það þýðir víst lítið að tuða yfir því, ekki fer hann við það...

Síðasta helgi var virkilega skemmtileg og tónleikarnir á föstudagskvöldið einfaldlega stórkostlegir. Vá. Frábært að fara á svona góða tónleika þar sem maður fær gæsahúð og tár í augun! Eftir tónleikana fór ég í sveitina þar sem var tekin æfing í skrafli fyrir jólin. Auðvitað burstaði ég annað spilið (hehe) svo að ég kem sterk inn í scrabble tímabilið í ár! Svo var afmæliskaka á laugardeginum enda áttu nöfnurnar Þórdís og Þórdís á Valdastöðum afmæli í gær. Svo var meira afmæli á laugardagskvöldið en Svala og Jenni héldu upp á stórafmælin sín. Flott veisla og rosa gaman - takk fyrir það!

Svo var maður bara fastur í snjóskafli heima á sunnudaginn. Sem betur fer vorum við nú ekki föst í bænum um nóttina eins og sumir voru víst. Dagurinn fór í að horfa á Föruneyti hringsins, extra langa þriggja og hálfs tíma útgáfu! Ekki leiðinlegt það... Ég bíð spennt eftir að horfa á hinar tvær en kassann keypti í einmitt í London.

Engin ummæli: