11.12.06

13 dagar til jóla!

Það styttist aldeilis í jólin og því var mjög við hæfi að taka eina jólasveitahelgi um helgina. Ég dreif mig uppeftir á föstudag og var helginni eytt í Scrabble (en ekki hvað?), laufabrauðsgerð, lestur, Trivial, sjötugsafmæli, rafmagnsleysi og kertaljós. Rafmagnið fór sem sagt vegna veðurs á laugardagskvöldið eftir matinn og var því ekkert annað að gera en að spila við kertaljós. Langt síðan maður hefur lent í svona svartamyrkri! Síðan var svo vont veður að það þurfti að keyra börn og fatlafól á milli húsa svo að við myndum nú ekki fjúka... ævintýralegt það. Jólaskapið helltist yfir mann þrátt fyrir vatnsveðrið og hef ég verið að söngla jólalög síðan.

Ef fólk hefur áhuga á öðruvísi jólalögum þá ef hægt að hlusta á allar jólaplöturnar hans Sufjans Stevens hér. Þetta kemur mér allavega í jólaskapið!

Engin ummæli: