Nei, þessi sunnudagur virðist ekki ætla að vera til sigurs hjá íslenska handboltalandsliðinu, Þjóðverjar eru að valta yfir þá í þessum skrifuðu orðum...
En hvað um það, vegna fjölmargra áskorana (!) ákvað ég að hætta ekkert að skrifa hérna, það eru allavega fjórir sem lesa þetta svo að það er bara fínt:) Vikan sem leið var hin rólegasta fyrir utan það að ég hefði getað lent í geðsjúklingi á vörubíl sl. fimmtudagskvöld. Við Selma vorum á leiðinni heim á fimmtudagskvöldið þegar við komum að fullt af löggubílum á gatnamótunum við Vífilstaðaveg, blikkandi ljós á fullu en ekkert umferðarslys svo að við skildum ekkert í þessu en alveg að drepast úr forvitni. Morguninn eftir komst ég hins vegar að því að þarna var verið að tæma gatnamótin ef trukkurinn kæmi æðandi þangað á 100 km hraða... eins gott að við komumst heilar heim segi ég nú bara!
Helgin var hin rólegasta líka. Byrjaði með Trivial móti í vinnunni á föstudag og svo kom Þórdís frænka í heimsókn frá laugardegi til sunnudags og var ýmislegt skemmtilegt gert, t.d. borðað á Jómfrúnni, farið í Kolaportið, horft á handbolta, farið í bíó og í Ikea. Allavega er maður í góðu formi í dag en ekki ryðgaður eins og stundum áður!
Já, best að kaupa miða á Lisu Ekdahl á meðan ég man...
28.1.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli