Nú er ég byrjuð í sumarvinnunni minni og þá er um að gera að blogga svolítið. Í sumar ætla ég að vinna að íðorðasafni í tungutækni. Íðorð eru ekki orð sem enda á -íð eins og einhver hélt fram heldur eru það fagorð, orð sem notuð eru í ákveðnum fögum eins og læknisfræði, tölvunarfræði og tungutækni. Mjög spennandi sem sagt. Ég ræð því eiginlega hvar ég vinn þetta og er að spá í að vera uppi í skóla þar sem fleiri verða að vinna. Þá er það líka í göngufæri svo að ég get labbað í vinnuna.
Annars er maður rétt kominn heim frá útlöndum þegar farið er að huga að næstu utanlandsferð. Já, við pöntuðum okkur ferð til Kanaríeyja, gömlu hjónin! Reyndar erum við ekki að fara með gamla fólkinu til Kanaríeyja heldur til Lanzarote sem er nýr áfangastaður frá Íslandi. Það kom svo frábært tilboð hjá Sumarferðum að við gripum það bara. Mér líst rosalega vel á staðinn og ef þið smellið á tengilinn hér að ofan sjáiði hvað ég á við. Fallegar strendur, falleg eyja, sól, sjór og huggulegheit! Þetta yljar manni í sumar yfir íðorðunum...
1.6.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli