7.6.05

Þriðjudagur

Skrýtið að vera farinn að vinna aftur. Og enn skrýtnara þegar ég veit ekki alveg hvar ég á að vera! Mér bauðst aðstaða á Orðabók Háskólans sem væri fínt ef hún væri í göngufæri. Þá bauðst mér líka að vera í tölvuveri 103 í Odda þar sem fleira fólk verður að vinna að málfræðiverkefnum í sumar og á sú stofa að vera læst þannig að hægt verður að geyma dótið sitt þar. Í síðustu viku mætti ég þangað en þá var ekki búið að læsa stofunni og þá nennti ég ekki að vera að þvælast með bækurnar á milli á hverjum degi. Síðan þá hef ég verið að vinna heima en ákvað að kíkja aftur í morgun. Þá var vissulega búið að læsa stofunni en ég ekki komin með lykil... Að vísu er verið að smíða lykla en ég er enn komin heim að vinna þangað til ég veit meira um það mál.

Um helgina fór ég að sjálfsögðu í sveitina þar sem veðrið rak mig úr bænum. Þar var ég drifin á 75 ára afmæli gamla skólans míns, Klébergsskóla á Kjalarnesi. Skólinn er mikið breyttur frá því ég var þar í 8.-10. bekk fyrir *hóst hóst* mörgum árum. Nemendum hefur fjölgað og búið er að byggja við og betrumbæta allt. Hitti líka gamla kennara og samnemendur sem var mjög gaman og heyrðist mér á einni að það ætti að fara að huga að næsta ríjúníjóni en það síðasta fyrir 5 árum var alveg frábært.

Í gær dreif ég mig svo loksins á Star Wars. Ljómandi fín mynd og gaman að sjá hvernig Svarthöfði varð vondur. Ætla samt ekkert að ræða hana frekar þar sem margir eiga eftir að sjá hana... Kom svo heim og horfði á Lost - VÁ, hvað þátturinn í gær endaði spennandi. Ég ætlaði ekki að geta sofnað á eftir, ég hugsaði svo mikið um það sem var að gerast! Úff, hvað ég er spennt að sjá framhaldið.

Jæja, þetta er gallinn við að vinna heima, maður á það til að fara að gera eitthvað allt annað en að vinna! Það breytist þó vonandi í vikunni og ég get farið að mæta eitthvert til vinnu:)

Engin ummæli: