Fyrstu kynnin af Finnlandi eru nokkuð sérstök. Fyrst lendir maður í Vanda, en flugvöllurinn heitir það á sænsku (Vantaa á finnsku...). Þegar ég kom svo út og var að bíða eftir strætó brunaði framhjá mér annar strætó sem stóð á PIKA stórum stöfum. Pika á finnsku þýðir nefninlega „hrað-“ eitthvað og voru líka pika bankar út um allt:) Fyrstu nóttina var ég hjá Sigrúnu frænku í Helsinki sem dreif mig í allsbert gufbað heima hjá sér. Mjög ljúft eftir ferðalagið að slappa af í sánu með ískaldan bjór.
Finnskur bjór, mmm...
Daginn eftir fór ég svo í lest til Joensuu á ráðstefnuna með plakatið góða á bakinu. Sat þar í fimm og hálfan tíma og sofnaði yfir júróvisjón á hótelinu um kvöldið, enda þriggja tíma munur og ég lúin. Ráðstefnan sjálf gekk svo ljómandi vel og á laugardeginum stillti ég upp risavöxnu plakatinu með hjálp góðs fólks. Í fyrsta kaffitímanum stóð ég stolt við gripinn og beið þess að fólk kæmi í hópum að ræða við mig um þetta gríðarmikilvæga verkefni. Einn Íslendingur kom. Jæja, ég var nú frekar fegin bara en brosti þó með sjálfri mér að fyrirhöfninni í kringum þetta plakat fyrir einn Íslending! Í seinni kaffitímanum var ég því frekar róleg og fékk mér kaffi og köku en þá kom einhver Þjóðverji sem truflaði mig með því að forvitnast um verkefnið og kaffið kólnaði... týpískt!
Plakatið fína
Á laugardagskvöldið flaug ég aftur til Helsinki enda höfðum við frænkur aldeilis planað júróvisjónpartý þar sem við myndum styðja Ísland og Finnland! Einhverra hluta vegna höfðu Finnarnir misst áhugann á keppninni og eins var ég enn og aftur orðin þreytt svo að kvöldið varð hið rólegasta. Vorum þó í sambandi við Ísland í gegnum Skype sem var mjög gaman.
Sumarið kom til Finnlands á sunnudaginn sem var mjög heppilegt. Dagurinn var því notaður til að safna orku og liggja í sólbaði. Um kvöldið fórum við frænkur svo á bar þar sem var tónlistarkeppni eða „musavisa“. Spiluð voru 10 lög og áttu liðin að vita nafn á lagi og flytjanda. Liðið okkar, „Icy Duo“ varð í 3. sæti sem var bara mjög gott miðað við að við vorum bara tvær í liði. Liðið sem vann var t.d. með 12 keppendur!
Í Porvoo
Á mánudaginn hitti ég svo finnskar vinkonur mínar, Viivi og Hönnu, verslaði svolítið með þeim, kjaftaði heil ósköp, labbaði alltof mikið og endaði heima hjá Viivi uppi í sveit rétt hjá Porvoo. Þar var grillveisla með fleiri vinum mínum og vinum þeirra og gisti ég þar eina nótt. Veðrið var áfram yndislegt, að sjálfsögðu var farið í gufubað og etið og drukkið úti í garði.
Hjá Viivi
Á þriðjudeginum var gerð tilraun til að versla en auðvitað voru flott föt í minni stærð ekki til í Helsinki! Alltaf er það svoleiðis þegar maður er ákveðinn í að eyða pening... Um kvöldið var önnur grillveisla heima hjá Hönnu í Helsinki, meira borðað, meira gufubað og fleira skemmtilegt fólk.
Miðvikudagurinn rann allt í einu upp - síðasti dagurinn í Finnlandi! Þá var ákveðið að túristast svolítið. Ég skoðaði kirkju sem er byggð inn í berg, höfnina og dómkirkjuna. Keypti mér meira dót og labbaði meira. Þá fór ég líka að borða á Zetor, frábærum bar í eigu Leningrad Cowboys. Fínn matur og skemmtilegt umhverfi, traktorar út um allt og risastór plastbelja á miðjum staðnum.
Ef vel er athugað má sjá traktor bakvið beljuna...
Þetta síðasta kvöld var mjög skemmtilegt og byrjaði snemma á „popppunktskeppni“ á bar einum í borginni. Þar varð liðið okkar í 2. sæti eftir bráðabana og vann 20 evrur á barnum! Síðan komst ég á tónleika með finnsku hljómsveitinni Aavikko. Þar voru allir vinir mínir í Finnlandi samankomnir og var þetta frábær endir á frábærri ferð! Ég er þegar farin að plana næstu ferð til Finnlands og allt sem ég ætla að gera þá. Vissulega gerði veðrið heilmikið en ekki síst félagsskapurinn og þessar frábæru móttökur sem ég fékk. Kiitos Suomi!!!





Engin ummæli:
Skrifa ummæli