Við vorum einmitt með grillaðan, nýveiddan lax úr Elliðaánum í matinn á laugardagskvöldið en Jói gerði sér lítið fyrir og veiddi einn glæsilegan á föstudag. Vonandi verða þeir fleiri í sumar:) Á laugardaginn fór ég svo á Þingvelli, Gullfoss og Geysi með tékkneskri vinkonu minni í björtu og fallegu veðri. Alltaf gaman að sjá fossa, goshveri og jökla í sólskininu!
3.7.07
Hitabylgja!
Hitabylgja á Íslandi, hvenær gerist það eiginlega? Þetta er alveg fáránlegt veður, maður flýr inn af svölunum af því að það er allt of heitt að sitja þar. Ekki að maður kvarti svosum þó að það megi alveg fara að rigna, sérstaklega fyrir vestan. Við erum nefnilega að fara í veiðitúr á Skarðströndina í næstu viku og vonandi verður einhver á þar til að veiða í... Þá get ég vígt nýju fínu vöðlurnar mínar og jakkann sem ég var að kaupa - nema það verði bara sólbaðsveður.



Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli