29.7.07

Sunnudagur

Loksins er Harry Potter lestrarlotunni lokið. Ég er búin að lesa allar bækurnar í einni bunu og kláraði þá nýjustu í dag. Ég vil svosum ekkert segja meira um hana annað en að hún er virkilega góð og gott að vera búin að fá botn í þessa miklu sögu! Svo verður spennandi að sjá hvað J.K. Rowling gerir næst. Þá er bara að skella sér á nýjustu myndina en eftir það verður tekið svolítið Harry Potter hlé. Spurning hvað maður fer að lesa næst...

Í vikunni sem leið skellti ég mér til Stokkseyrar í kajakferð. Þannig er að við systur fengum gjafabréf í slíka ferð þegar við útskrifuðumst í febrúar í fyrra en vorum aldrei farnar að fara. Við skelltum okkur því af stað ásamt mágkonu og krökkum og gerðum úr þessu fínustu ferð. Við byrjuðum á Veiðisafninu sem var alveg magnað og fórum því næst á Álfa- og tröllasafnið sem var ekki alveg jafnmagnað... Þar var biluð peran í norðurljósunum og ekki alveg þúsund króna virði að labba þarna í gegn. Krökkunum fannst samt fínt þarna. Svo fórum við á kajaka og skemmtum okkur vel við að sigla um fenin, festast í ógöngum og villast:)

Við Jói fengum svo óvænt að prófa að veiða í Korpu í ca. 3 tíma í vikunni. Virkilega gaman að koma þangað og gaman að sjá fullt af laxi í þessum ám í miðri borg. Að vísu vildi hann ekki koma á land en Jói missti nokkra á fluguna sem var verulega svekkjandi! Við græddum þó aðeins á þessu þar sem við tíndum nokkrar golfkúlur þarna við ána. Maður þarf greinilega að passa sig að fá ekki svoleiðis í hausinn þegar maður er að veiða þarna!

Engin ummæli: