
Helgin er svo búin að fara í hvíld í sólinni. Alltof heitt til að sitja á svölunum samt, alveg logn og steikjandi sól. Við fórum í hádeginu í dag og fengum okkur humarsúpu hjá Sægreifanum sem var ljómandi góð. Frekar furðulegt að sitja úti í sólinni á bakvið húsið, alveg við hliðina á sorpinu. Enda voru nokkrir túristar sem skildu ekkert í þessu þegar þeir löbbuðu framhjá. Við vorum sennilega einu Íslendingarnir þarna en mikið var um túrista og ofsalega mikið líf við gömlu höfnina. Heilmargir að fara í hvalaskoðun og á vappi þarna um. Gaman að sjá allt þetta fólk þarna:)
Þessa dagana sit ég svo sveitt við og les Harry Potter eina ferðina enn. Ég pantaði fyrstu fjórar bækurnar á Ebay um daginn og er búin að lesa á fullu síðan þær komu (eftir 9 vikur á leiðinni með árabát frá Ameríku). Ég var að enda við að klára fjórðu bókina og ætla að lesa fimmtu og sjöttu aftur áður en ég les þá nýju. Þá verð ég með plottið á hreinu þegar lokakaflinn er lesinn! Ég verð nú samt að hafa mig alla við svo að ég nái þessu, þetta eru ansi þykkar bækur og nýja bókin kemur um næstu helgi! Best að fara þá að lesa núna...
1 ummæli:
Vá hvað þú ert dugleg! Ég ætlaði nú líka alltaf að gera þetta. Sé ekki fram á að komast yfir nema bara síðasta kaflann í 6. bókinni áður en ég fæ bók nr. 7 í hendur. En það verður að duga í bili!! Hlakka svo til!
Skrifa ummæli