Ekki er veiðiveðrið gott þessa dagana en þrátt fyrir það á að skella sér í veiðitúr á morgun. Árlega Krossárveiðiferðin er nú farin í júlí og stefnir allt í að hún verði laxlaus í ár, aldrei þessu vant. Allavega var ekki kominn einn lax í ána síðast þegar fréttir bárust þaðan. Sennilega förum við bara í september á næsta ári eins og venjulega. Ekki nóg með að rigningarleysi og laxleysi séu til vandræða heldur er ekkert grín að fá maðk. Þeir eru seldir á allt að 100 kr. stykkið - en við létum vera að kaupa af þeirri sölukonu. Við fórum hæst í 90 kr. stykkið. Svo æfir maður sig kannski bara á fluguna eða beitir rækju og gulum baunum í versta falli!
Þar sem ég fann loksins út hvernig er hægt að senda myndir beint á bloggið úr símanum verður kannski eitthvað meira af því í gangi. Svo er aftur annað mál að ég þarf að fara að fá mér betri síma sem tekur sæmilegar myndir - ég hef stolist í símann hans Jóa hingað til. Þá get ég líka sent myndir frá Tælandi en við ætlum að skella okkur þangað í brúðkaupsferð í ágúst... meira um það síðar!
10.7.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli