Þá er ég bara orðin frú eftir helgina! Það finnst mér svakalega fullorðins eitthvað. Dagurinn var í alla staði yndislegur enda vorum við einstaklega heppin með veðrið. Athöfnin í kirkjunni var ofsalega vel heppnuð og er það mikið til tónlistarfólkinu okkar að þakka, þeim Sigrúnu frænku og Matta hennar, sem spiluðu og sungu svo falleg lög. Finnskur brúðarmars á leiðinni inn kirkjugólfið, Dagný og Augun þín blá í athöfninni og finnskur brúðarmars eftir sjálfan harmónikkuleikarann á leiðinni út. Á eftir var skálað í garðinum á Valdastöðum og síðan var matur og alls kyns skemmtilegar uppákomur með söng og gleði. Þar komu frændsystkinin Óskar Þór og Selma Hrönn sterkt inn með söng og spili og Sigrún og Matti héldu áfram að syngja og spila. Eftir frábæran mat og gómsæta köku var dansað í garðinum við harmónikkuleik þar til rútan fór í bæinn full af glöðu fólki. Þetta verður dagur sem við gleymum aldrei og ég segi bara takk fyrir mig allir saman!
Eftir þessi ósköp er maður voða lúinn en ánægður. Við förum svo í brúðkaupsferð til Taílands í ágúst sem verður líka spennandi, gaman að hafa eitthvað að hlakka til... Ef þið viljið svo sjá myndir úr brúðkaupinu þá getið þið skoðað myndasíðuna hans Siggamusar sem var sérskipaður ljósmyndari á laugardaginn.
25.6.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
þökk fyrir mig. þetta var rosastuð!
og enn og aftur til hamingju!
og verði ykkur að. míns bíður spenntur eftir að fá að smakka nýbrennt & malað með pönnsunum
en svo veistu að myndirnar eru aðeins fleiri en þetta ...
Já, takk aftur fyrir myndatökuna og gjöfina og komuna og allt:) Við fáum svo kannski restina af myndunum bara á diski til að eiga. Frábært að eiga bara nóg af myndum!
Innilegar hamingjuóskir, frú mín góð! Gott að heyra að dagurinn var yndislegur, og gaman að sjá þig á blogginu aftur.
Mínar allra bestu,
Laufey
Skrifa ummæli