12.8.07

6 dagar í frí!

Í dag eru aðeins sex dagar þangað til við förum til Taílands! Sex dagar í þetta! Úúú hvað það verður skemmtilegt:) Við förum sem sagt til Phuket í Taílandi á laugardaginn og verðum ansi marga klukkutíma á leiðinni. Fljúgum fyrst til Kaupmannahafnar og þaðan beint til Bangkok þar sem við skiptum um flugvél og höldum áfram til Phuket. Allt í allt ca. 19 tíma ferðalag... Það verður bara spennandi að prófa það! Svo er ýmislegt planað úti, siglingar og fílaskoðun svo eitthvað sé nefnt. Við ætlum að reyna að vera dugleg að setja myndir inn á myndasíðuna og jafnvel blogga e-ð að utan. Sérstaklega þar sem er internettenging á herberginu!

Annars er svosum ekki mikið búið að vera að gerast. Skrapp á Apavatn í gær þar sem vinnan var í útilegu. Reyndi aðeins að renna fyrir fisk en allt steindautt. Ég er farin að halda að ég sé svaka fiskifæla, ég veit ekki hvað er langt síðan ég fékk fisk! Við fórum einmitt að veiða aftur í Korpu á dögunum en fengum ekkert þar. Þetta gengur nú bara ekki...

Verslunarmannahelgin var ein sú rólegasta í manna minnum, maður var bara heima á kvöldin að slaka á. Við fórum einmitt í Korpu á laugardeginum og fórum út úr húsi hálfsjö að morgni, svaka hress. Maður hefur nú stundum verið að koma heim á þeim tíma, ekki alveg jafnhress!

En, sex dagar! Eftir viku verð ég í Taílandi! Jibbíjei!!!

1 ummæli:

Regnhlif sagði...

Úff. Öfunda ykkur. Væri alveg til í að vera á leiðinni til Taílands.