Ég er komin í sumarfrí! Júhhú!!!
Við þurfum að vakna um þrjú í nótt til að græja okkur af stað... skemmtilegt:) Flug nr. 1 fer kl. sjö og svo tekur eitt við af öðru. Ég er alveg búin að finna til bækur, setja hljóðbækur inn á ipodinn og auðvitað fullt af tónlist. Og svo svefntöflu svo ég sofi kannski í langa fluginu. Vona að þetta verði allt til þess að það líði ekki mjög hægt. Svo er auðvitað e-ð sýnt í sjónvarpinu í flugvélinni.
Ég held að ég sé líka bara búin að pakka öllu. Óvenju lítill farangur með í för enda erum við bara með handfarangur svo við þurfum ekki að standa í að sækja farangurinn og tékka okkur aftur inn á Kastrup. Þetta er langfljótlegast svona. Svo kaupir maður sér bara eitthvað í útlöndunum! Það er nefnilega allt svo ódýrt í Taílandi, a.m.k. ennþá. Vesen á krónunni að vera að veikjast svona akkúrat núna!
Ég reyni að blogga e-ð í ferðinni og setja inn myndir - fylgist spennt með!
17.8.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Góða ferð til Taílands, þetta verður örugglega frábært. Hlakka til að hitta ykkur svo í Kaupmannahöfn í byrjun sept :)
Skrifa ummæli