Tha er ferdasogunni haldid afram!
A fostudaginn svafum vid vel ut og sloppudum af, enda luin eftir batsferdina a fimmtudaginn. Vid vorum tho buin ad akveda ad fara ut a fostudagskvoldid en tha var skipulagdur gledskapur sem vid forum i. Thannig er ad a sidunni www.tripadvisor.com er m.a. spjallthradur og thadan fengum vid margar gagnlegar upplysingar um hvad aetti ad gera herna. Hjonin Richard og Megumi, Kanadamadur og japonsk kona hans, skipuleggja hladbord og barferd fyrir folkid a thessum spjallthraedi oll fostudagskvold. Vid vorum sott af theim um sexleytid og keyrd aftan i pick-up asamt fleira folki a veitingastad rett hja Rawai beach, a sudurhluta Phuket. Thar hittum vid m.a. folkid sem var med okkur i batsferdinni, en flestir sem vid toludum vid skipulogdu ferdina a svipadan hatt og vid og aetludu thvi ad gera somu hlutina (batsferd med Mark, bilferd med Mr Mor o.s.frv.). Maturinn var hladbord med allskonar bbq mat, svinarif, kjulli, pylsur, alls kyns kartoflur og allt var thetta a godu verdi. Og ekki var verra ad literskanna af Chang bjor kostadi bara 200 kall! Eftir matinn var keyrt med okkur adeins lengra a bar sem heitir Sunshine bar og thar var svaka fjor. Stelpurnar a barnum ekkert sma hressar, dansandi og syngjandi, einn "ladyboy" var svo i starfslidinu sem var kvenlegri en eg:) Thar var drukkid meira og vid kynntumst ferlega finum krokkum fra Englandi sem eru einmitt a sama hoteli og vid. Vid hofdum svo keypt brennivin til ad gefa folki og gafum ollum ad smakka. Vid gafum lika Mark skipstjora fra deginum adur einn pela sem thakklaeti fyrir frabaera ferd en lika af thvi ad hann atti afmaeli. Hann var lika mjog svo anaegdur med thetta.
Laugardagurinn var, eins og gefur ad skilja, mjoooog rolegur. Svafum mikid, lagum vid sundlaugina og forum snemma ad sofa. Afskaplega vidburdalitill dagur.
I morgun voknudum vid hins vegar um 9 til ad fara i ferd sem fyrrnefndur Richard skipuleggur lika. Tha er farid i filaferd, a stad thar sem bua filar sem hefur verid misthyrmt. Their hafa tha verid aldir upp i ad vinna erfidisvinnu en verid t.d. bardir svo mikid og beittir ofbeldi ad their hafa snuist gegn eiganda sinum og ekki getad unnid meira. Tha eru their sendir thangad eda keyptir thangad thar sem their fa ad bua i fridi. Tho er haegt ad nota tha til thess ad ferja folk smahring a bakinu. Vid forum i halftima a filsbak, upp brekku thar sem var stoppad a utsynisstad, og nidur aftur. Thetta var ansi mognud upplifun, furdulegt ad sitja a filsbaki (ad visu a stolum en ekki bakinu sjalfu) med taernar a filnum. Filshudin er svo grof og thykk og svo standa har upp ur sem kitla mann! Filnum stjornadi svo tannlaus Tailendingur sem spjalladi og spjalladi vid filinn a tailensku a medan hann stjornadi honum. Umhverfid tharna var mjog flott, farid var i gegnum skog af gummitrjam og var mikid af litrikum fidrildum tharna a flogri. Eg vil samt eiginlega ekki hugsa um hinar poddurnar sem voru sennilega tharna lika! A thessum stad koma lika oft apar sem madur hittir og faer ad leika vid en thvi midur maettu their ekki akkurat thegar vid vorum tharna sem var ansi svekkjandi. En thar sem thetta er ekki dyragardur tha er ekki haegt ad stjorna thvi hvenaer aparnir birtast. Vid saum tho einn a leidinni a filnum, hann la uppi vid tre og geispadi...
Vid hittum Richard og Megumi aftur i kvoldmat, forum med theim a pizzahladbord i nagrenninu. Allt sem thu getur i thig latid a 200 kall! Richard var svo anaegdur, vid gafum honum restina af brennivininu og staupglas med islenska fananum:) Gaman ad kynnast svona skemmtilegu folki herna! Allt Internetinu ad thakka.
26.8.07
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Það er alveg æðislegt hvað þú ert dugleg að bloga og það er rosa gaman að fylgjast með þessum frábæru ævintýrum ykkar enda kíkjum við hérna á síðuna á hverjum degi :D:D Bara endilega vertu dugleg að blogga áfram og skemmtið ykkur ótrúlega vel áfram :D
Bestu kveðjur frá mæðgunum á Hornafirði...
Já sama hér, skoða bloggið á hverjum degi. Er búin að reyna að gefa comment en það fer aldrei í gegn. Reyni enn einu sinni.
kv tölvunördin systir þín:)
Sko það tókst núna, jibbí.......
Skrifa ummæli