5.9.06

Paris je t´aime

Ég fór á kvikmyndahátíð í gær á myndina Paris je t´aime. Þetta eru í raun 16 stuttar myndir eftir mismunandi leikstjóra um mismunandi hverfi Parísarborgar. Misgóðar myndir eins og gefur að skilja en í heildina var gaman að myndinni, sérstaklega þegar maður hefur verið í París. Enda var fullt af fyrrverandi au pair stelpum í bíó. Það vantaði þó alveg eina mynd um hressar au pair stelpur að skemmta sér í París! Mig langar svo að sjá miklu fleiri myndir á kvikmyndahátíðinni en hef hvorki tíma né efni á því. Ég ætla þó að sjá I´m your man um Leonard Cohen og jafnvel eins og eina mynd til.

Skyldi maður svo geta vakað yfir Rockstar í nótt? Nú á að vera Magnavaka á Skjá 1 og svaka stemmning. Verst að ég er alltaf sofnuð fyrir miðnætti. Ég hélt mér ekki einu sinni vakandi yfir endursýningunni síðasta miðvikudagskvöld! Og ekki vakna ég fyrir sex á morgnana, það er alveg á hreinu. Hann hlýtur að hafa þetta af án mín hann Magni.

Þetta er kannski aldurinn. Nú er stóri dagurinn eftir fjóra daga! Gráu hárunum fjölgar og svo framvegis. Ég hlakka samt bara til. Ég ætla að skemmta mér stórvel á laugardaginn og vona að aðrir geri það með mér! Minni af því tilefni á óskalistann hér til hliðar...

Engin ummæli: