28.8.06

Síðasti mánudagur sumarsins

Já, þetta er síðasti mánudagur sumarsins. Byrjar ekki haustið annars 1. september? Þannig er nú það, síðasta sumarvikan nýbyrjuð og mér finnst sumarið vera í mesta lagi hálfnað. Þetta litla sumar sem annars kom. Svona er þetta á hverju ári...

Annars hafa síðustu helgar að mestu farið í þrítugsafmæli. Menningarnæturdaginn var eitt og núna á laugardaginn annað. Ljómandi gaman alltaf í þessum veislum! Svo er ég eftir 12 daga...

Ég fór annars ekkert á menningarnótt nema á Árbæjarsafnið um daginn að skoða diskó/pönk sýninguna. Hún var virkilega skemmtileg en þó minni en ég hélt. Toppurinn var þegar við dönsuðum á gamla Hollywood gólfinu við diskólög undir handleiðslu reynds diskóbolta. Síðan var jú afmæli á milli fimm og sjö (næstum því til átta samt) og svo fórum við ægilega kát heim og vorum í svaka stuði klukkan átta. Svo sofnaði ég yfir sjónvarpinu kl. ellefu...

Annað hef ég lítið gert spennandi að undanförnu. Horft mikið á sjónvarpið. Er inni í öllum þáttum á Skjá einum nema The Contender sem ég hreinlega þoli ekki. Er mjög spennt yfir Fingersmith en ég tók upp seinni hlutann í gær til að horfa á í kvöld (einmitt á meðan The Contender er...). Er komin inn í alla geimveruþætti/sæskrímslaþætti (Invasion, The Surface), glæpaþættirnir halda mér límdri við skjáinn og var mér mjög skemmt þegar CSI:New York reyndist vera framhald af síðasta CSI:Miami þætti. Skemmtilegt tvist það! Svo er það auðvitað Alias sem er flóknari en nokkru sinni fyrr og svo raunveruleikaþættirnir en mér til mikillar gleði er America´s Next Top Model að byrja enn og aftur. Og Rockstar Supernova. Hver fylgist ekki með því? Samt les ég stundum líka, glæpasögur að sjálfsögðu. Það er orðið mjög langt síðan ég las eitthvað verulega menningarlegt. Að vísu las ég Furðulegt háttarlag hunds um nótt sem var æðisleg en hún er eiginlega líka barnabók. Ég ætti kannski að fara að lesa þessar Laxness bækur í bókahillunni sem ég á eftir að lesa. En þannig er nú það. Léttmetið er ágætt.

Engin ummæli: