26.9.06

Vinnudýr

Þá er útivist minni lokið í bili og tími til kominn að sitja við tölvu í borginni næstu mánuðina. Þrír veiðitúrar í röð taka sinn toll! Þó að ég hafi kannski ekki veitt mjög mikið - og þó! Tveir ágætis urriðar í Laxá í Nesjum og tveir laxar í klakveiðinni í Kjósinni. Það er kannski ágætt. Annars var túrinn austur ljómandi góður. Að vísu var veðrið svo vont síðasta daginn að það var varla stætt úti í á og við urðum svo veðurteppt fyrir austan eina nótt. Sem betur fer var enginn að koma í veiðihúsið á eftir okkur svo að við fengum að vera þar eina nótt til viðbótar. Daginn sem við keyrðum aftur í bæinn var svo glampandi sól og blíða alla leiðina og var alveg ótrúlega fallegt að keyra meðfram jöklinum. Ofboðslega falleg leið!

Áður en við héldum austur fór ég svo á Nick Cave tónleika. Þeir voru auðvitað frábærir enda ekki við öðru að búast.

Hann var erfiður mánudagurinn í gær þegar ég byrjaði að vinna á Orðabókinni. Mikið var ég syfjuð enda búin að vera í veiðitúrum meira og minna allan september. Hér verður þó örugglega fínt að vera fram í desember. Allavega verður ágætt að komast inn í rútínu aftur...

Engin ummæli: