Afmælisbarnið og unnustinn
Á miðvikudaginn var haldið í Krossá á Skarðsströnd til veiða. Í hífandi roki og rigningu komu tveir laxar á land fyrsta daginn, í sól og blíðu kom einn lax annan daginn en enginn vildi bíta á síðasta daginn í fínu veðri. Engan fékk ég þó af þessum þremur löxum en það kemur kannski næst. Alltaf jafngaman að fara í Krossána, góður félagsskapur og fallegt umhverfi!
Krossá
Valdís veiðikló
Á morgun er svo haldið af stað í annað ferðalag. Ferðinni er heitið til Hornafjarðar og verður farið að veiða þar rétt hjá, í Laxá á Nesjum, á mánudag. Þar verður veitt í tvo daga og svo haldið í rólegheitum heim á leið með viðkomu e-s staðar á leiðinni.
Svo fer maður kannski bara að vinna! Ég er að fara að vinna að verkefni hjá Orðabók Háskólans sem nú ku vera orðin hluti af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar verð ég allavega fram í desember og svo er að sjá hvað tekur við þá.
En fyrst af öllu er það Nick Cave í kvöld! Já, þetta verður í fjórða skiptið sem ég sé hann, eða fimmta ef talinn er með upplestur úr bók í Virgin Megastore í París... Alltaf er ég jafnspennt. Það verður forvitnilegt að vita hvort prógrammið sé mikið breytt að þessu sinni, hvað hann tekur af gömlum lögum o.s.frv. Hlakka til!




Engin ummæli:
Skrifa ummæli