13.6.06

Zzzzzzz

Meira hvað mann syfjar svona seinnipart dags. Sérstaklega þegar maður situr einn úti í horni og er að lesa sér til um miðmynd. Svo vantar mig líka tónlist í vinnuna. Verð að fara að gera eitthvað í því þó að hún pandóra hafi dugað ágætlega hingað til. Þetta lagast líka í vikunni þegar við fáum aðgang að tölvustofu nokkur saman, þá getur maður farið að geispa í takt við aðrar sálir.

Svindl þessi skítakuldi úti. Sól og kalt eða rigning og hlýtt. Hvað á það að þýða? Ætli það verði ekki blautur sautjándi í ár. Veðrið í fyrra endurtekur sig sennilega ekki næstu árin, jafnvel áratugina svo maður sé nú ekki of bjartsýnn.

Þrettándinn í dag sem þýðir að stóra systir á stórafmæli. Til lukku gamla mín! Allt er fertugum fært og allt það. Tilefni til að mæta í afmælismat í kvöld allavega.

Jæja, mætir bossinn. Þá fer maður að vinna.

Engin ummæli: