16.6.06
Ikea raunir
Hafa ekki allir lent einhvern tímann í Ikea raunum? Vara ekki til en væntanleg þegar maður er loksins búinn að velja, vara búin í litnum sem maður hefur verið að kaupa og kemur ekki aftur o.s.frv. Við erum búin að vera tíðir gestir í Ikea undanfarnar vikur vegna íbúðarinnar og yfirleitt hafa hlutirnir gengið ágætlega fyrir sig og við bara ánægð með vörurnar. Svo keyptum við okkur fataskáp til að setja yfirhafnir og slíkt í eftir langa umhugsun og pælingar um hvernig væri best að hafa þetta. Það gekk allt hefðbundið fyrir sig, við sóttum hann á lagerinn og burðuðumst með hann heim (níðþungur andskoti) og höfðum hann svo í kassanum í nokkra daga þar sem við náðum aldrei að setja hann saman. Loksins þegar var komið að því að setja saman skápinn (að kveldi mánudags dauðans) kom í ljós að þetta var VITLAUS SKÁPUR! Við fengum einfaldan skáp en ætluðum að kaupa tvöfaldan. Grrrr. Mér var ekki skemmt, svo vægt sé til orða tekið, kassinn tættur í sundur og kassakvittunin týnd. Ég þakka enn fyrir það að skyldi vera búið að loka þetta kvöld því að ég var tilbúin að hella mér duglega yfir aumingja starfsfólkið í Ikea. Daginn eftir sendi ég hins vegar mjög kurteislegt tölvubréf til Ikea þar sem ég skýrði frá þessu og var lofað að ég gæti skilað þessu þó að kassinn væri rifinn upp og kvittunin týnd. Í gær drusluðum við (eða Jói) skápnum aftur í Ikea, fengum fyrirtaks þjónustu og fría heimsendingu á nýja skápnum sem nú er næstum því búið að setja saman. Happy ending og allir kátir. Mórall: Það borgar sig að vera kurteis!
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli