19.6.06

Myglaður mánudagur

Ljómandi fínni helgi lokið og grámyglan tekin við. Fór í afskaplega fínt matarboð á föstudaginn þar sem var dýrindis fiskisúpa á borðum og ljúffeng ostakaka í eftirrétt. Fór þó heim fyrir miðnætti þó það hafi verið gaman til að vakna fersk í þjóðhátíðarveiðina. Dúðaði mig í lopapeysu og regngalla frá toppi til táar en engin var rigningin. Meiraðsegja varð aðeins of heitt á tímabili. Keypti einmitt regngallann sérstaklega fyrir sautjándann í fyrra og þá var nú besta veður í manna minnum. Kaupi nýja regnhlíf á næsta ári eða eitthvað. Engin var þó veiðin í ár en ein flundra slapp naumlega af öngli Þórdísar. Þjóðlegt hangikjöt var á borðum eftir æsispennandi handbolta og fótbolta í Dísukoti. Helginni var svo lokið með því að þrífa sameign (reyndar Jói en ekki ég...) og klára að setja saman Ikea skápinn fræga.

Svo er bara að vinnast.

Engin ummæli: