Í sumar ætla ég að leitast við að notast sem mest við st-sagnir, sagnir sem enda á -st. Ég ábyrgist ekki að það takist en vonast til að það heppnist. Ég efast einnig um að þið kannist við þær allar en sumar virðast ansi furðulegar. Þetta verður hluti af sumarvinnunni minni, sagnirnar hrúgast upp í tölvunni minni og munu þar flokkast og greinast eftir stöðu og merkingu. Skemmtilegt, ekki satt?
Um helgina ætlar góð vinkona mín að giftast og yfir því ber að gleðjast. Fólk ætlar að hittast í þar til gerðri búðkaupsveislu og kætast í tilefni dagsins. Ég er viss um að veitingarnar bragðast vel þar á bæ. Það á því ekkert að ferðast innanlands um helgina þó að það spái 20 stiga hita fyrir norðan. Frekar á eitthvað að gerast í íbúðinni, gluggar að lakkast og loft að málast. Sjáumst!
2.6.06
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli