Það er allt að gerast þessa dagana. Það byrjaði nú á því að á miðvikudaginn var stakk ég af með Jóa upp í sumarbústað. Við fengum bústað í Grímsnesinu í tvær nætur og þar var ég netlaus að búa til plakat fyrir ráðstefnuna í Finnlandi. Fyndið hvað maður kemur miklu í verk þegar er ekkert net að trufla mann. Þar komst ég líka að því að ég hafði fallið í tölvunarfræðinni... ekki skemmtilegt:(
Á föstudaginn brunuðum við svo úr Grímsnesinu í Kjósina þar sem familían ætlaði að vera um helgina. Þar kláraði ég blessað plakatið, stressaðist soldið meira yfir Finnlandsferðinni en var mest uppi á túni og í fjárhúsunum. Að sjálfsögðu var svo mikið etið af góðum mat.
Í gær komum við svo í bæinn og ég tók nett stresskast yfir því að vera að fara út og svo margt eftir að gera... Dagurinn í dag er búinn að fara í stúss og meira stúss - fótsnyrtingu, sækja plakatið, sækja lyf, kaupa nokkrar evrur - og svo fer ég út í fyrramálið! Júhhú! Núna snýst aðalstressið um hvernig ég á að koma þessu blessaða plakati út. Það er miklu stærra en ferðataskan sem ég fer með og í þungum hólki þannig að það verður erfitt að dröslast með það í handfarangri. Ég er farin að sjá eftir því að hafa ekki látið gera bara lítið, pent plakat - en það er víst of seint. Svo er það bara mikið af bjór og sauna framundan skilst mér. Sé ykkur síðar og kippis! (skál! á finnsku)
17.5.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli