9.5.05

Mánudagur

Jæja, þá er ég búin í prófum! Mikið svakalega er ég fegin að vera búin í þessu, allavega í bili. Mér gekk nú samt ekkert svakalega vel í prófinu en það kemur vonandi í ljós fljótlega hvort ég næ eða hvort ég þarf að taka sumarpróf.

Svo er það bara næsta mál á dagskrá, að undirbúa ráðstefnuna í Finnlandi. Allt í einu er bara rúmlega vika í að ég fari út! Reyndar ætlaði ég að reyna að komast sem fyrst í sveitina aftur um hvítasunnuna, svona í staðinn fyrir sumarbústaðaferð. Maður er alltaf í sveitinni þessa dagana en það er bara svo notalegt á þessum árstíma...

Í gærkvöldi fór ég að sjá nýjasta leikrit Hugleiks, Enginn með Steindóri. Þetta er alveg frábært leikrit hjá þeim að venju, mjög fyndið. Og þetta segi ég ekki bara af því að Jói leikur í því... Þetta er sýnt í Möguleikhúsinu og er bara klukkutími og korter að lengd. Ég hvet hér með alla til að kíkja á þetta, það eru ekki margar sýningar eftir en leikritið er sýnt út maí.

Engin ummæli: