Gleðilegt sumar gott fólk! Loskins, loksins er veturinn búinn og það er meira að segja bara ágætis veður þennan fyrsta sumardag. Ég las líka að sumar og vetur hefðu frosið saman í nótt en það ku boða hlýtt sumar:)
Í gær var líka góður dagur en þá gengum við frá kaupum á bíl! Samningar tókust um kaggann flotta og settum við hinn upp í. Reyndar verður nokkur söknuður af gamla góða bílnum enda hefur hann staðið sig frábærlega þau 3 ár sem við höfum átt hann. En nú var kominn tími til að skipta og loksins er maður á bíl með rafdrifnum rúðum, samlæsingum og... hita í sætum! Okkur vantar bara nafn á hann - númerið er RD-001 en ég fæ ekki samþykkt að kalla hann Rosa Dúllu - skil það bara ekki! Allar hugmyndir vel þegnar takk.
Í vikunni sá ég aðra afskaplega góða mynd á kvikmyndahátíð, Hotel Rwanda. Svakalega góð mynd sem gerist í Rúanda árið 1994 þegar allt varð vitlaust þar en Vesturlandabúar sneru sér í aðra átt og gerðu ekkert í málunum. Vönduð mynd og góður leikur. Vekur mann aldeilis til umhugsunar...
Enn ein helgin framundan og allt óráðið. Vonandi kemst maður allavega í smábíltúr á fína bílnum. Maður þarf að prófa hann á þjóðvegunum líka:)
21.4.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli