Hvað á þetta að þýða að hafa snjó úti á miðju vori? Það þurfti að skafa snjó af bílnum í morgun! Eins gott að sumardekkin voru ekki komin undir bílinn. Annars gengur ekkert hjá okkur að finna bíl. Það er afskaplega lítið af notuðum fínum Grand Vitara bílum til sölu og þeir sem við vildum kaupa voru seldir áður en við komumst að. Einhvers staðar þarna úti er kagginn minn að keyra og bíður eftir að komast til mín... ég verð bara að bíða eftir honum.
Ég fór á svo yndislega mynd um helgina, The Garden State, sem sýnd er á kvikmyndahátíð. Ég mæli með henni ef þið viljið sjá eitthvað á hátíðinni. Ég væri alveg til í að sjá fleiri myndir þarna og vonandi kemst ég í það á næstunni. Reyndar þurfti ég að hugsa málið þegar ég var beðin um að koma í bíó því að ég er orðinn alltof háð sjónvarpsdagskránni. Ég vissi ekki alveg hvernig ég gæti tekið upp af þremur stöðvum í einu en að lokum lét ég til leiðast og sá ekki eftir því. Þökk sé Stöð 2+:)
Að öðru leyti var þetta hin rólegasta helgi, ég fór í leikhús á laugardagskvöldið að sjá sýningu Hugleiks, Patataz. Ágætis skemmtun það. Svo frumsýnir Hugleikur nýtt leikrit í maí sem maður verður að sjá...
Sá svo furðulega mynd á Skjá 1 á föstudagskvöldið, Tremors með Kevin Bacon og fleirum. Alveg ágætis skemmtun en algjör vitleysa að sjálfsögðu. Ef þið lesið um hvað myndin er þá skiljið þið kannski hvað ég á við!
12.4.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli