Það er aldeilis ég er búin að vera bissí, enginn tími til að röfla eitthvað á þessari síðu! Ýmislegt búið að gera í vorblíðunni síðustu daga. Fór t.d. með finnskan gest í „golden circle“ bíltúr og prófaði um leið nýja bílinn á þjóðveginum. Að sjálfsögðu stóð hann sig með mestu prýði. Svo er ég að klára eitt stykki ritgerð í setningafræði og býst fastlega við því að kíkja í sveitina um helgina að hlusta á fuglana syngja og lömbin jarma úti í móa.
Svo er það nefnilega dauðans alvara framundan. Próf í tölvunarfræði á laugardaginn eftir viku. Úff, ég á örugglega eftir að fela mig í fjóshaugnum bara í staðinn fyrir að mæta í prófið. Líst hreinlega ekkert á það!
Eftir prófið hefst svo undirbúningur fyrir Finnlandsför en ég var að komast að því í vikunni að ég þarf ekki að halda fyrirlestur eftir alltsaman. Ég á að kynna verkefnið mitt á plakati eða nokkrum A4 blöðum sem eru límd á spjald. Svo á ég að vera við þetta plakat í ákveðinn tíma og svara spurningum þeirra sem meira vilja vita. Ég hef aldrei gert neitt þessu líkt þannig að það verður spennandi að prófa það. Ég er nú samt hálffegin að þurfa ekki að halda fyrirlestur á ensku fyrir framan fullt af fólki... það finnst mér alltaf svolítið stressandi.
Góða helgi gott fólk!
29.4.05
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli